Þúsundir hafa sýnt Haraldi heitnum Noregskonungi virðingu sína síðustu daga með því að koma að kistu hans í konungskapellunni í Oslóardómkirkju. Norska hirðin segir að fólk geti þurft að bíða allt að fjórar klukkustundir í röð eftir að fá að hneigja sig fyrir konunginum í hinsta sinn.
Til að minnka biðina hefur hirðin ákveðið að hafa kapelluna opna til klukkan ellefu að kvöldi fram á þriðjudag. Daginn eftir verður Haraldur jarðsunginn og búist er við fjölda tiginna gesta hvaðanæva úr heiminum.
Því er óhætt að segja að allt sé á öðrum endanum í Osló við skipulagningu og undirbúning athafnarinnar. Hluta miðborgarinnar verður lokað fyrir almennri umferð og hert öryggisgæsla verður í borginni og við landamærin.
Yfirmenn lögreglu segjast enga áhættu ætla að taka. Norska ríkisútvarpið greindi frá því í dag að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði á tveggja daga ráðstefnu Repúblikanaflokksins í Texas þegar útför Haraldar verður gerð.
Þúsundir lögreglu- og hermanna, norskra, danskra og sænskra, verða til að gæta öryggis á götum Oslóar enda búist við að tugþúsundir safnist saman í miðborginni. Tæplega 2.000 hermenn standa heiðursvörð meðfram leiðinni frá konungshöllinni að Oslóardómkirkju og til Akerhus-virkis þar sem Haraldur verður lagður til hinstu hvílu.