Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Guðný Helga Sæmundsen segir sveitalífið hafa mótað sig mest. Þar hafi einfaldleiki lífsins orðið til þess að hún gat valið á milli glímu og fótbolta.
„Ég held að það sem hafi mótað mig mest sé að búa úti á landi, eða alast upp úti á landi. Ég er frá Bláskógabyggð og bý við Gullna hringinn. Núna er ég að læra ferðamálafræði, þannig að bara tengslin við náttúruna og ferðamanninn hafa örugglega mótað mig mest.
Mér finnst svo gaman að tala við ferðamenn og kynna Ísland fyrir ferðafólki. Þannig reyni ég að hafa allt sem ég segi við ferðamennina rétt og satt og leiðrétta þær villur sem þeir hafa kannski heyrt. En ég held að það að búa úti á landi sé það besta við líf mitt. Ég mun flytja þangað aftur seinna. Ég bý núna í borginni og er nemi, ég er að læra ferðamálafræði og er matarleiðsögumaður. Seinna mun ég líklegast flytja aftur í sveitina.
Helsti munurinn er kannski að maður þurfti að finna sér eitthvað að gera. Bara sem dæmi, félagsmiðstöðin mín var …