Mikill fjöldi fólks er saman kominn í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag við þingfestingu í stóru fjársvika- og peningaþvættismáli. Óhætt er að fullyrða að sjaldan hafi verið svo þröngt á þingi í dómstólnum og langur dagur fram undan.
70 eru ákærðir. Tveir menn á fertugsaldri eru taldir bera mesta sök. Þeir neituðu sök við fyrirtökuna í morgun. Báðir eru ákærðir fyrir peningaþvætti, umboðssvik og til vara fyrir fjársvik fyrir að nýta kerfisvillu hjá Reiknistofu bankanna til að hafa 95 milljónir króna af Landsbankanum.
Fjórir eru ákærðir fyrir að fá 64 einstaklinga til að þvætta féð. Þeir sem þvættu féð eru ákærðir fyrir peningaþvætti.
Starfsmenn dómstólsins reyna að halda utan um skipulag en ljóst er að mikið verk er fyrir höndum. Barbara Björnsdóttir er dómari í málinu en ákæran er 149 blaðsíður og 76 gögn sem verða lögð fyrir dóminn.
71 einstaklingur er ákærður fyrir að hafa haft fé af Landsbankanum og þvætt það. Málin eru þingfest í sal 101, stærsta dómssal Héraðsdóms Reykjavíkur, en þeim er einnig streymt í dómssal 102.
Margir sakborningar sóttu þingfestinguna en ekki allir. Sumir huldu andlit sín en aðrir ekki. Þá virtust þó nokkrir sakborningar kjósa að sitja í dómssal 102 og fylgjast með úr beinu streymi. Ekki er auðið að bóka alla sakborninga samtímis sökum fjölda þeirra og þarf því að skipta þeim upp í sjö hópa.
Hópur sakborninga er ansi fjölbreyttur. Ýmsir túlkar eru viðstaddir þingfestinguna en alls eru sex erlend tungumál töluð. Sakborningar eru bæði Íslendingar og erlendir ríkisborgarar. Bæði karlmenn og konur eru ákærð í málinu og eru á ýmsum aldri.
Úr hópi 1 var enginn sem játaði sök en eftir eru hinir sex hóparnir.