Þrír táningar á aldrinum 16 til 17 ára hafa verið ákærðir fyrir að skipuleggja sprengjuárás á ótilgreindum stað í Ósló síðasta haust. Saksóknari í vesturhluta Noregs gefur út ákæruna á hendur þremenningunum sem allir eru frá Rogalandi.
Fjallað er um ákæruna í frétt norska ríkisútvarpsins NRK. Þar segir að piltunum sé gefið að sök að hafa lagt á ráðin um að varpa handsprengjum eða koma af stað sprengingu í borginni með öðrum hætti. Samkvæmt heimildum NRK tengjast fyrirætlanir piltanna sprengingu sem varð í borginni í september.
Tveir piltanna eru sagðir hafa komist að samkomulagi við þriðja piltinn um að hann tæki við sprengiefni og kæmi fyrir í miðborg Óslóar.
Lögmaður eins piltanna segir umbjóðanda sinn hafa játað brot sín í yfirheyrslum.
Tveir piltanna eru einnig ákærðir fyrir að hafa reynt að ráða fleiri drengi undir lögaldri til að koma sprengingunum til leiðar. Þeir eru grunaðir um að starfa fyrir Foxtrot-glæpagengið. Það er umfangsmesta glæpagengi Norðurlanda, stýrt af Rawa Majid sem gengið hefur undir nafninu Kúrdíski refurinn.