Frá og með 1. september má fólk sem hefur selt fasteignafélaginu Þórkötlu húsnæði sitt í Grindavík aðeins gista þar tiltekinn fjölda nótta í mánuði. Gerð verður krafa um að fólk skrái inn þær nætur sem gist er til að „efla öryggi og yfirsýn yfir rýmingu eignanna“, að því er segir í tilkynningu á vef Þórkötlu.
Grindvíkingar sem hafa selt Þórkötlu fasteignir sínar hafa getað gert svokallaða hollvinasamninga um afnot af þeim. Föst búseta í þeim er óheimil en fólk hefur getað gert sérstakan viðauka við samninginn frá því í fyrra sem heimilar því að gista.
Á fundi Járngerðar, hagsmunasamtaka Grindvíkinga, fyrr í vikunni kom fram að Þórkatla stefndi að því að takmarka gistingu við 12 nætur á mánuði í hverri eign.
„Margir ætla að skila inn lyklunum“
Bæjarfulltrúi í Grindavík gagnrýnir það að takmarka eigi fjölda gistinátta og segir þetta setja fyrirætlanir um skólahald í uppnám. „Það er enginn bær án barna og við teljum að þetta áhættumat sem er verið að byggja þessa ákvörðun á sé alveg ónothæft,“ segir Ómar Davíð Ólafsson.
„Maður heyrir alveg á fólki að þeir sem voru komnir heim og byrjaðir að viðhalda húsunum og slá garðana – það fólk er bara er að gefast upp. Margir ætla að skila inn lyklunum í haust,“ bætir hann við.
Sjálfur kemur Ómar í bæinn daglega.
„Við sem erum hérna í Grindavík, störfum hérna alla daga og gistum einhverja daga, okkur líður hvergi betur en hér. Það er nú það sem við höfum verið að berjast fyrir – að við leyfum fólki sem vill koma heim að koma heim,“ segir hann.
Auknar öryggiskröfur
Í tilkynningu Þórkötlu segir að félagið ætli að auka öryggis- og eldvarnaeftirlit eignanna samhliða því að hollvinir skrái hvaða nætur þeir gista. „Sem svar við þeim kröfum sem gerðar eru á félagið í tengslum við dvöl hollvina í þeim.“
Félagið stefnir enn að því að bjóða fyrri eigendum upp á að kaupa eignir sínar til baka með sérstökum endurkaupasamningi sem enn er unnið að.
Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, vildi ekki veita fréttastofu viðtal þegar eftir því var leitað.