Þorgerður Katrín eyðileggur málstað ESB-sinna

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra skipti um skoðun á undanþágum í miðri kosningabaráttu fyrir ESB-aðild. Fram að 20. júlí sagði Þorgerður Katrín að undanþágur frá regluverki ESB væru í boði, einkum hvað varðar fiskveiðistefnu sambandsins.
Í viðtali við Vísi 10. júlí segist Þorgerður Katrín
sannfærð um að undanþágur fáist í bæði sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum.
Tíu dögum síðar er komið allt annað hljóð í strokkinn. Þann 20. júlí segir utanríkisráðherra, einnig á Vísi, að ótímabært væri að ræða undanþágur. Í tilefni af heimsókn franska utanríkisráðherrans til Íslands sagði Þorgerður Katrín:
Nei, við ræddum ekki undanþágur eða neitt slíkt,
Hvað breyttist á tíu dögum, frá 10. til 20 júlí? Jú, Þorgerður Katrín var staðin að ósannindum. Hún hafði sagt við blaðamann Vísis að Rob Jetten forsætisráðherra Hollands hefði gefið vilyrði fyrir undanþágu Íslands frá fiskveiðistefnu ESB. Morgunblaðið afhjúpaði ósannindin. Aldrei fór fram samtal á milli Jetten og Þorgerðar Katrínar. Enn síður að sá hollenski vilji veita undanþágu frá fiskveiðistefnunni.
Hrakfarir Þorgerðar Katrínar leiddu til þess að hún hætti að tala um að undanþágur. Nýja nálgunin er að þjóðin eigi að treysta utanríkisráðherra fyrir fjöregginu, yfirráðum yfir auðlindum Íslands.
Meginþungi málflutnings ESB-sinna, fram að 20. júlí, var að Ísland yrði undanþegið fiskveiðistefnu ESB, sem gerir ráð fyrir jafnan aðgang að fiskimiðum aðildarríkja. Eftir að Þorgerður Katrín var staðin að ósannindum datt botninn úr röksemdafærslunni. Aðeins er í boði aðild að Evrópusambandinu. Leiðin inn í ESB kallast aðlögunarferli þar sem umsóknarríki jafnt og þétt tekur upp laga- og regluverk sambandsins. Framkvæmdastjórnin í Brussel fylgist með að umsóknarríkið standi skil á sínu. Án aðlögunar verður engin aðild.
Hvorki Þorgerður Katrín og enn síður Kristrún forsætisráðherra treysta sér til að selja Íslendingum aðild að Evrópusambandinu án fyrirvara. Málflutningurinn gekk út á þær frábæru undanþágur sem Ísland myndi njóta. En við höfum nú þegar bestu og varanlegustu undanþáguna. Sem er að standa utan ESB.