Þorgerður gefst upp á undanþágu fyrir Ísland

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra tilkynnti í gær að hún hefði gefist upp á að ræða undanþágu Íslands frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Í umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst, um að endurvekja ESB-umsókn, er stefnubreytingin stórtíðindi.
Tveir fjölmiðlar hallir undir ESB-aðild, RÚV og Vísir, fluttu í gær sömu fréttina með sömu fyrirsögn. Samræmdar fréttir tveggja fjölmiðla vísa til samráðs um áherslur í fréttaflutningi. RÚV og Vísir höfðu samráð sín á milli að spyrja Þorgerði Katrínu ekki óþægilegra spurninga. Fjölmiðlarnir tveir þykjast sjálfstæðir en starfa eins og ein ritstjórn.
Á Vísi segir Þorgerður Katrín: ,,Nei, við ræddum ekki undanþágur eða neitt slíkt“.
RÚV fer þá leið að hafa eftir utanríkisráðherra Frakklands að tilgangslaust sé að ræða undanþágur frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Útlendur ráðherra segir þeim íslenska fyrir verkum.
Hvorki Vísir né RÚV sjá stóru fréttina í málinu, sem er stefnubreyting Þorgerðar Katrínar. Síðustu daga, vikur og mánuði er utanríkisráðherra óþreytandi að segja hverjum sem heyra vill að Ísland fái undanþágu sjávarútvegsstefnu ESB. Þann 10. júlí síðast liðinn voru það einmitt Vísir og RÚV, í bræðralagi ESB-miðlunar, sem sögðu sömu tíðindin, beint úr munni utanríkisráðherra.
RÚV hafði eftir Þorgerði Katrínu þann 10. júlí: ,,Við megum ekki gleyma því við Íslendingar að við erum stórveldi þegar kemur að fiskveiðum og það er ekkert ríki eins og Ísland.“
Vísir birti sama dag orðrétt eftir Þorgerði Katrínu: ,,Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við. Það er ekkert ríki eins og Ísland sem er að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið sem er þetta stórveldi í sjávarútvegi, með þessa þekkingu, með þessa reynslu.“
Fyrir ellefu dögum voru Vísir og RÚV samstíga um að Ísland væri stórveldi í sjávarútvegi. Allir með eitthvað á milli eyrnanna vita að stórveldi ræða sín brýnustu hagsmunamál í samskiptum við önnur ríki. En í gær var ákveðið að Ísland ræddi ekki stórveldahagsmuni sína við erlenda viðsemjendur. Utanríkisráðherra ákvað stefnubreytinguna. RÚV og Vísir hlýddu eins og kjölturakkar í fangi ráðherra og spurðu einskins. Báðir fjölmiðlarnir eru á fjárlögum ríkisins til að spyrja erfiðra spurninga.
Líkt og Morgunblaðið greindi frá, og tilfallandi bloggaði um í gær, er ástæða stefnubreytingar Þorgerðar Katrínar sú að hún varð uppvís að ósannindum. Við fjölmiðla sagði utanríkisráðherra að Rob Jetten forsætisráðherra Hollands hefði gefið sér fyrirheit um undanþágu Íslands frá sjávarútvegsstefnu ESB. Rob Jetten neitar staðfastlega að hafa gefið ádrátt um undanþágu.
Ráðherradómur Þorgerðar Katrínar hangir á bláþræði vegna ósannindanna. Þótt RÚV og Vísir stingi hausnum í sandinn, og láta sem ekkert sé, veit alþjóð betur. Allur málflutningur já-sinna er í uppnámi vegna utanríkisráðherra. Tiltrú á Þorgerði Katrínu er fokin út í veður og vind. Fjórar vikur rúmar eru til þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Kosið verður um traust á utanríkisráðherra. Þorgerður Katrín er ónýtt vörumerki fyrir ESB-umsókn.