Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að láta af þingmennsku. Í tilkynningu á vefsíðu Stjórnarráðsins segir að utanríkisráðherra hafi skipað hana sendiherra til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.
Þórdís Kolbrún greinir einnig frá þessu á Facebook-síðu sinni.
„Í dag var tilkynnt ákvörðun um skipan mína í embætti sendiherra. Af því leiðir að ég tel rétt að segja mig frá þingstörfum. Ég mun formlega tilkynna forseta Alþingis um að ég segi af mér þingmennsku og hef upplýst þingflokkinn minn,“ skrifar hún.
Hún skrifar að undanfarin misseri hafi hún hugleitt hvernig hún geti gert Íslandi og íslenskum hagsmunum gagn. „Með hliðsjón af reynslu minni, þekkingu og tengslum á sviði alþjóðamála tel ég að ég geti, við núverandi aðstæður, gert mest gagn fyrir íslensku þjóðina með starfi á því sviði.“
Hún þakkar vinum og félögum í Sjálfstæðisflokknum farsælt samstarf.
Á þingi frá 2016
Þórdís Kolbrún hefur setið á þingi frá árinu 2016 og sat í ríkisstjórn árin 2017-2024. Hún gegndi embætti ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dómsmálaráðherra, utanríkisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.
Þórdís Kolbrún var varaformaður Sjálfstæðisflokksins árin 2018-2025.
Árni Helgason tekur sæti fyrir hana. Bryndís Haraldsdóttir, sem var þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar, er nú orðin fyrsti þingmaður í kjördæminu. Fyrsta sætið skipaði Bjarni Benediktsson, fyrrverandi formaður flokksins, sem hætti á þingi í janúar í fyrra.
Í lok janúar komu upp sögusagnir um það að Þórdís Kolbrún ætlaði að eiga vistaskipti. Hún blés þó á þann orðróm.
Fréttin hefur verið uppfærð.