Það er alveg rétt að það á ekkert að gagnrýna Ólaf Ragnar Grímsson fyrir að tala gegn aðildarviðræðum við ESB. En það á heldur ekki að láta eins og skoðun hans sé ofboðslega fréttnæm.Ólafur Ragnar var á móti EES-samningnum fyrir rúmum 30 árum. Taldi samninginn hættulegan. Hann var á móti NATO aðild, sá hættur í þeim félagsskap. Hann var á móti EFTA. (Og hann var reyndar líka á móti að leyfa sölu á bjór á Íslandi.) Það hefði verið mun meiri frétt ef Ólafur Ragnar hefði sagt: skoðum þetta mál bara með opnum huga.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar: Tækifæri fyrir Ísland eða klassíska hjalið um fátækt og eymd?