Ali Fayad, þingmaður Hezbollah-hreyfingarinnar, segir ekkert vit í að framlengja vopnahlé milli Ísraels og Líbanons. Hann segir hreyfinguna áskilja sér allan rétt til að bregðast við aðgangshörku Ísraelshers. Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gærkvöld að vopnahléið yrði framlengt um þrjár vikur.
Þá höfðu háttsettir fulltrúar ísraelskra og líbanskra stjórnvalda rætt saman ásamt forseta, varaforseta og utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Fayad sagði að ekkert vit væri í vopnahléi meðan Ísraelar héldu áfram árásum. Hann sagði Hezbollah vera í fullum rétti að svara fyrir sig leggi Ísraelsher til atlögu.
Alger afvopnun Hezbollah skilyrði langvarandi friðar
Líbönskum stjórnvöldum þykir vopnahléð hið mesta fagnaðarefni. Þeim ber hins vegar, samkvæmt ákvæðum samkomulagsins, að koma í veg fyrir að Hezbollah geri árásir á Ísrael. Stríðandi fylkingar hafa þegar sakað hvor aðra um vopnahlésbrot.
Ísrael krefst algerrar afvopnunar Hezbollah sem greinendur telja draga úr líkum á langvarandi friði. Háttsettir íranskir ráðamenn hafa rætt vopnahlé við kollega sína í Pakistan, þar sem allt er til reiðu ákveði Íranar og Bandaríkjamenn að hittast augliti til auglitis.
Náist ekki jafn viðamikið samkomulag við Írana og kjarnorkusamkomulagið 2015 telur Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, að Íran geti orðið heimsbyggðinni hættulegra en nokkru sinni fyrr.