„Stríðið er að breytast mikið. Það er að verða stigmögnun,“ segir Karl Garðarsson, fyrrverandi þingmaður og fjölmiðlamaður, sem hefur verið á ferðalagi í Úkraínu síðustu vikur.
Hann segir árásir á borgir og bæi hafa færst í aukana og mannfall og tjón samhliða því. „Þetta er orðið drónastríð fyrst og síðast. Það er ótrúlega mikið mannfall á báða bóga.“
Sér ekki fyrir lausn á næstunni
Karl segir að um 1.300 rússneskir hermenn falli eða særist alvarlega á hverjum sólarhring.
Í nýlegri frétt Business Insider er haft eftir John Ratcliffe, framkvæmdastjóri bandarísku leyniþjónustunnar, að rússneskur hermaður endist aðeins að meðaltali í 20-30 mínútur á vígvellinum. Þessar litlu lífslíkur megi rekja til gervigreindardróna.
Mannfall er einnig mikið meðal Úkraínumanna.
Hann segir gamaldags stríðsrekstur þar sem margir hermenn eru sendir til að reyna að ná landsvæði heyra sögunni til.
„Þetta að vaða áfram og fórna hundruðum manna í einni árás heyrir eiginlega sögunni til. Nú eru það drónarnir sem sjá alveg um þetta.“
Úkraínumenn eru, að sögn Karls, farnir að svara fyrir sig í ríkari mæli sem hefur valdið stigmögnun átakanna.
„Ég sé ekki fyrir mér að það verði nein lausn á þessu stríði á næstunni þótt það mætti vonast til þess. Þvert á móti held ég að það verði stigmögnun áður en friður loks kemst á í þessu landi.“
Mikið tjón í Kyiv síðustu daga
Í Kyiv segir Karl að loftvarnarflautur fari af stað einu sinni til tvisvar á sólarhring. Sjálfur hefur hann þurft að leita í loftvarnarbyrgi síðustu daga.
„Það hefur orðið mikið tjón hér síðustu daga vegna árása sem hafa verið mjög miklar. Rússar hafa verið að senda hundruðir eldflauga á síðustu dögum og það sama gildir um dróna.“
Þrátt fyrir umfangsmiklar árásir segir Karl að lífið í Kyiv gangi sinn vanagang. Fólk fari til vinnu og út á kvöldin.
„Á yfirborðinu er þetta eins og þú myndir sjá hvar sem er annars staðar. Undir niðri er þetta hins vegar öðruvísi.“
Hann segir það taka mjög á fólk að vera sífellt með loftvarnarflautur og árásir hangandi yfir sér. „Þetta hefur mjög slæm andleg áhrif á fólk þó að margir reyni að ýta þessu aðeins frá sér.“