Þegar tón­listin hel­tók lög­manninn - Vísir

Þegar tón­listin hel­tók lög­manninn - Vísir

Þegar tón­listin hel­tók lög­manninn - Vísir

Og, jú. Það stóð heima. Fyrir rúmlega einu og hálfu ári söðlaði hæstaréttarlögmaðurinn Jóhannes rækilega um og gaf út sína fyrstu plötu: „Oak in the snow“. Hann fór þegar í að vinna næstu plötu sem heitir „Montauk Station“ og er hún öll komin út að frátöldu einu lagi, sem kemur út núna 5. júní næstkomandi. Hin lögin má finna á Spotify.

„Plöturnar hafa gengið mjög vel miðað við að ég er nýr og er núna með tæplega 20 k „montly listeners“ á Spotify,“ segir Jóhannes spurður hvernig hinn óvænti tónlistarferill hafi gengið.

„Ég hélt líka tvenna tónleika í haust og báðir seldust upp. Vinsælustu lögin á nýju plötunni hafa verið Montauk Station og Right Before We Fall.“

Eftir 5. júní verður öll platan komin formlega út. Það er ekki á hverjum degi sem 44 ára gamlir hæstaréttarlögmenn standa í því að gefa út plötur. Skikkjan er þó ekki alfarið komin inn í skáp.

„Nei, ekki alveg, ég er í því til hliðar, en hef minnkað töluvert við mig í því, til að geta sinnt þessu saman.“

Tónlistin alfarið á hilluna meðan lögmennskubrjálæðið gekk yfir

Jóhannes hefur ekkert fengist við að flytja tónlist opinberlega, fyrr en nú.

„Nei, ekkert fyrr en ég gaf út fyrstu lögin í nóvember 2024. Ég var eitthvað að fást við að vera trúbador, spilaði eitthvað í menntaskóla með hljómsveitum á yngri árum en gaf aldrei neitt út eða það fór þannig að við gerðum eitthvað úr því. Svo lagði ég þetta alveg á hilluna í tvo áratugi. Já, þetta er sérstakt dæmi, þetta lá bara í dvala en svo var sem kviknaði í sinu um leið og ég leyfði mér að prufa að byrja aftur.“

Jóhannes segir að það hafi verið átak að æfa ryðgaða röddina upp eftir áratugalangt hlé.vísir/vilhelm

Og hvað verður til þess að það kviknar í þessari sinu, eins og þú orðar það?

„Þetta var þannig að þegar maður leyfir söngröddinni að fara alveg, engin notkun á henni í mörg ár, þá fer hún í raun alveg. Það gerist hjá öllum. Niður á bara sama plan og ef maður væri að reyna að syngja á karókíbar. Þetta er nefnilega ekki meðfætt heldur æfðir vöðvar sem fara alveg úr æfingu.“

Jóhannes segir það hafa kostað bilaða vinnu að ná röddinni til baka. Eftir fimm ár af notkunarleysi leist honum ekki á blikuna.

„Það hefði kostað að minnsta kosti 100 klukkutíma af stöðugri vinnu með tilheyrandi látum og leiðindum. Eitthvað sem ég gat aldrei fengið mig í meðan ég var í lögmennskubrjálæði og fjölskyldulífi allan þann tíma.“

Tónlistin orðið að algerri maníu

En Jóhannes lofaði sér því reglulega og oft að hann myndi endurheimta röddina.

„En ég gerði það aldrei og þetta varð erfiðara og erfiðara. Ég bældi þetta lengra niður með tímanum. En að lokum fór það svo að ég lofaði mér og konunni að gera þetta. Ég tók mér mánuð í frí, þar sem ég sat og söng mig upp í um sex tíma á dag, fimm daga vikunnar. Þá kom þetta aftur. Við þetta urðu fyrstu lögin og textarnir bara óvart til. Og af því ég var hvort sem er að hamast í þessu allan daginn þá kviknaði í sinunni og ég gat ekki hætt.“

Tónlistin veitir Jóhannesi lífsfyllingu, einhverja áður óþekkta vímu sem hann fann ekki í lögmennskunni.vísir/vilhelm

Jóhannes segir að tónlistin hafi í raun orðið að algerri maníu.

„Það er þörf til að skapa eitthvað sem situr eftir. Ekki bara enn ein afgreiðslan á enn einu fasteignagallamálinu sem gengur út á að rífast um peninga og svo aftur og aftur, heldur að kafa ofan í tilfinningar manns og söguna og reyna að grípa í einhverja tilfinningu, þjáningu eða gleði, og ná að festa hana á einhverja laglínu. Síðan eyða hundruðum klukkutíma í að finna réttu samsetningu hljóðfæra og línur þar ofan á, til að hún passi við og nái að kreista hana sem skýrast fram.“

Jóhannes lýsir þessu ferli býsna vel.

„Þegar það tekst á endanum, að eigin mati og nógu vel til að maður sé stoltur og tilbúinn að sleppa laginu út, þá kemur einhver losun. Áður óþekkt víma. Sérstaklega þegar maður fær mikil viðbrögð, þá í formi mikillar hlustunar og skilaboða á samfélagsmiðlum. En, aftur, þetta er tvíeggjað sverð, af því þetta hefur auðvitað sogað mann ofan í svarthol þessara miðla, sem ég var nánast laus við áður,“ segir Jóhannes og hlær.

Var búinn að vinna sér inn tíma í tónlistinni

En praktíska hliðin á þessu ævintýri. Kostar þetta ekki talsvert í peningum talið?

„Jú, það er svo hinn mínusinn í þessu. Sérstaklega þegar maður vill gera þetta allt á gamla mátann, ég nota enga gervigreind, nánast engin sömpl og svo framvegis. Öll hljóðfærin eru spiluð af hljóðfæraleikurum inni í stúdíói og svo er þetta hljóðblandað af alvöru pródúserum. Þá kostar þetta mjög mikið. Þannig að jú, það er allavega ekki hægt að hætta alveg í lögmennskunni á meðan, þá fer maður á hausinn,“ segir Jóhannes sposkur.

En sem betur fer fyrir Jóhannes þá hafði hann verið lengi að og duglegur, hinum megin línunnar, þannig að hann gat leyft sér að gera þessar tvær plötur.

Þó Jóhannes líti til samfélagsmiðla hvað varðar hlustun tekur hann því með sem þar kemur fram með fyrirvara. Hann veit að slíkt getur reynst skammgóður vermir.vísir/vilhelm

„Svo tek ég langa pásu frá því að gefa út núna og verð bara í að spila á tónleikum og svoleiðis. Ég stefni á næstu útgáfutónleika í september, svo dæmi sé nefnt.“

Og þessi leit að drauminum, hefur þetta staðið undir væntingum þínum?

„Já, og miklu meira en það. Ég fór af stað í algerri óvissu og bara að vona að einhverjir myndu hlusta en þorði ekki að hugsa lengra en það. Nú hefur þetta farið gríðarlega hratt af stað og mjög mikil hlustun á öllum miðlum. Er með um 20 þúsund hlustendur á mánuði á Spotify núna og töluvert á öðrum miðlum.“

Viðbrögð á samfélagsmiðlum gefa vísbendingu

Jóhannes segir það vitaskuld ekki hið eina sem máli skiptir í þessu samhengi. Hann vill gjalda varhug við því að rýna of mikið í hegðun á samfélagsmiðlum. Þetta sé hins vegar ágæt vísbending.

„Slíkt kemur víst og fer hratt í dag. Ef maður er nýr og þar af leiðandi ekki með fyrir fram ákveðinn hóp hlustenda, þá þarf maður stöðugt að halda áfram að gefa út ný lög, það er að segja ef maður ætlar að halda slíkum dampi. En mér finnst ótrúlega gaman og gefandi að það sé svona mikið af fólki að hlusta. Að minnsta kosti þegar maður er að gefa út lögin.“

Jóhannes segir alla orku hafa hingað til farið í að skapa lögin og gefa þau út.

Jóhannes segir tónlistina hafa heltekið sig og er á meðan er.vísir/vilhelm

„Ég hef bara náð að halda tvenna tónleika, sem voru í haust og seldist upp á báða. Meira hef ég ekki haft orku í að gera á þeim vígstöðvum, þannig ég ætla að einbeita mér að því í framhaldinu af útkomu þessarar seinni plötu, sem kemur formlega út núna 5.6.2026. Ég stefni á að halda næstu tónleika 25. september en mun tilkynna nánar um þá dagsetningu fljótlega. Þetta er bara ferli sem togar mig stanslaust lengra og lengra inn.“

Tónlistin hefur heltekið Jóhannes

Jóhannes segir tónlistina vera ávanabindandi og það geti út af fyrir sig valdið töluverðri angist á tímum.

„Sérstaklega þegar manni finnst eitthvað ekki vera að ganga upp, sem maður er samt búinn að verja gríðarlega miklum tíma og orku í að skapa. Þá getur reynst erfitt að bakka, en maður veit það innst inni þegar eitthvað er ekki nógu gott til að gefa út. Maður verður að treysta innsæinu og fylgja því. En já, ég sé að minnsta kosti ekki eftir að hafa farið af stað, þó að þetta hafi allavega tímabundið gjörbreytt lífi mínu og heltekið mann.“

Um er að ræða sóló-verkefni Jóhannesar sem gefur allt sitt út undir eigin nafni en það breytir ekki því að margir tónlistarmenn aðrir koma að málum.

„Guðrún Bjarnadóttir er alltaf með mér sem kvenröddin í þeim lögum sem er kvenrödd. Daníel Hjálmtýsson hefur spilað mjög mikið inn á þetta, aðallega rafmagnsgítar en einnig ýmis önnur hljóðfæri. Hálfdán Árnason er á bassa og Skúli Gíslason oftast á trommur,“ segir Jóhannes sem nefnir einnig Unni Jónsdóttur á selló og sjálfur er hann á píanó og kassagítar.

Lögmennskan hefur haft áhrif á lögin

„Síðan eru þrír pródúsentar sem hafa komið að málum: Pétur Ben, Bjarni Þór Jensson og Eðvarð Egilsson, sem hafa stjórnað upptökum á tveimur til þremur lögum hver um sig. Þeir hafa líka spilað á ýmis hljóðfæri á þessari plötu. Fleiri hafa komið að þessu í minni hlutverkum líka.“

Lögmennskan og tónlistin virðast í fljótu bragði ekki eiga mikið sameiginlegt en þar eru þó snertifletir, ef að er gáð.vísir/vilhelm

Eins og áður sagði stefnir Jóhannes á útgáfutónleika 25. september.

„Þar verður Guðrún með mér og Eyja, fiðluleikari sem var að ganga til liðs við okkur. Svo er bara að reyna að spila þessi lög hér og þar og sjá hvert þau leiða mig. Ég geri ráð fyrir að gefa svo meira út í framtíðinni en vonandi verður þokkaleg pása eftir þessa plötu.“

Hér kemur skrítin spurning en ég verð að spyrja hennar engu að síður: Hefur lögmennskan haft einhver áhrif á tónlist þína?

„Óbeint, já. Það má í raun segja að öll lífsreynslan blandist sérstaklega inn í textana. Ég er að vissu leyti þakklátur fyrir að hafa ekki gert þetta þegar ég var miklu yngri og búinn að fara í gegnum miklu minna í lífinu. Innsæið breytist, sérstaklega á það hvað er djúpt og hvað er grunnt, að fjalla um.“

Lífeyrissjóðsþegar gegn Lífeyrissjóði verslunarmanna

Jóhannes telur að hann væri ekkert tiltakanlega sáttur við texta eftir sig sem hann hefði barið saman 25 ára.

„Þannig að það er jú mikilsverð reynsla, til dæmis í lögmennsku, þar sem þú þarft að díla við og takast á við oft mjög erfiðar tilfinningar annars fólks. Allt litróf tilfinninga fólks smitast oft yfir á lögmenn og þeir höndla það auðvitað misvel. 

Þetta snýst um það að vera inni í ágreiningi annars fólks allan daginn. Vissulega er þetta reynsla sem hefur áhrif þegar maður að reyna að fjalla um mannlegar tilfinningar og segja mannlegar sögur.“

Og hver eru eftirminnilegustu mál sem þú hefur mátt takast á við sem hæstaréttarlögmaður?

„Þau eru of mörg til að fara djúpt ofan í, en Hrd. 11/2024 er vægast sagt athyglisvert. Þetta var mál lífeyrissjóðsþega gegn Lífeyrissjóði verslunarmanna. Þar voru breytingar á lífeyriskerfum nokkurra stærstu sjóða landsins dæmdar ólögmætar og í andstöðu við mörg ákvæði stjórnarskrár og laga um lífeyrissjóði. Þrír dómarar og sérfróður voru allir sammála um öll brotin í héraði. Fimm dómarar í Hæstarétti voru líka allir sammála, nema um að hér væri ekkert að sjá og engin ákvæði stjórnarskrár eða laga væru brotin. Sérstakt.“

#heltók #lögmanninn #tónlistin #vísir #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262892116d/thegar-ton-listin-hel-tok-log-manninn

📰 Aðrar fréttir

Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 1
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 1
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 1
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 2
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 1
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 2
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 2
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 2
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 2
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 2
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 3
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að ekki þurfi þá lengur að senda lögreglu, björgunarsveitir eða starfsfólk Vegagerðarinnar á sta...
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
Síðustu daga komst Elliði í hann krappan á samfélagsmiðlum þegar hann birti mynd af mönnum sem hann tengdi við óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland...
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
Hvorki kaupverð né leiguverð íbúðarhúsnæðis heldur í við verðbólgu, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Fastei...
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
Steve Witkoff erindreki Bandaríkjastjórnar og Vladimír Pútín Rússlandsforseti funduðu í Sankti Pétursborg í Rússlandi í gær. Þetta var níundi fundur þ...
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
A court has stopped the eviction of a 70-year-old man with cancer in Guaza, in the south Tenerife municipality, a day before it was due to take place....
Slydda eða snjókoma norðvestan til
📅 22.10.2026 👁️ 3
Slydda eða snjókoma norðvestan til
Íbúar á norðvesturhorninu geta búist við dálítilli slyddu eða snjókomu í dag og víðar á landinu er útlit fyrir skúrir eða slydduél. Norðantil verður þ...
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
Hvar er best að geyma brauð svo það haldist ferskt sem lengst? Í ísskápnum, plastpoka eða brauðkassa? Bakarar segja að margir geri mistök þegar kemur ...
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
Allt útlit er fyrir að Demókratar nái stjórn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem fara fram þar í landi þann 3. nóvember. Allar kannanir ...
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
Á sama tíma og fornleifafræðingar koma að tómum kofanum standa stærðfræðingar frammi fyrir gagnstæðum vanda. Fyrr í mánuðinum birti gervigreindarfyrir...
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
Fjölmiðlar, fjölmiðlanefnd og hlaðvörp hafa verið töluvert í umræðunni. Undir Loga Einarssyni eru reyndar fjölmörg önnur mál, svo sem háskólar, nýsköp...
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
📅 22.10.2026 👁️ 3
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
Health officials have confirmed three cases of viral meningitis linked to pupils at CEIP Tigaday in La Frontera, El Hierro. All of those affected are ...
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
📅 22.10.2026 👁️ 3
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
A man has been arrested and sent to prison pending proceedings over the sexual assault and murder of a woman in Tenerife nine years ago.The National P...
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
Mærður höfundur hankaður á gervigreind Nýstirni í skáld­sagna­heim­inum hefur orðið fyrir aflýs­ingu eftir að gervi­greind greind­ist í margróm­uðu ve...
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem greint er frá því helsta sem kom upp frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt. Þar er sagt að l...
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
Scotland editor James Cook visits Rosebank - the UK's largest known untapped oilfield - in the North Atlantic.
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
📅 22.10.2026 👁️ 3
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
The Canary Islands will see contrasting weather today, Thursday 22nd October, with improving conditions in the east and a greater chance of rain acros...
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
📅 22.10.2026 👁️ 3
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
Mynd Á dögunum þegar rökleysan í efnahagsumræðunum gekk fram af
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær eða nótt um fjögur ungmenni sem voru að brjótast inn í húsnæði í umdæmi 1, sem er Austurbær, M...