Það mun allt iða af fjöri og lífi í íþróttahúsinu á Hellu í dag því þar verður haldin fjölmenningarhátíð þar sem erlendir íbúar, sem búa í Rangárþingi munu kynna sín lönd og menningu, auk þess að gefa gestum að smakka á mat frá heimalöndum sínum.
Fjölmenningarhátíðin í íþróttahúsinu stendur frá klukkan 14:00 til 16:00 í dag þar sem fulltrúar þeirra 30 þjóðerna, sem búa í Rangárvallasýslu munu kynna sín lönd í máli og myndum, auk þess að gefa fólki að smakka á helstu réttum sinna landa.
Jóhann G. Jóhannsson, er íþrótta- og fjölmenningarfulltrúi hjá Rangárþingi ytra en hátíðin var haldin í fyrra á Hvolsvelli og nú er komið að Hellu.
„Það verða ýmsar þjóðir, allt frá Danmörku til Senegal, sem eru að bjóða upp á mat og kynningu á menningu og öllu því, sem þessi lönd hafa boðið upp á. Það verða fánar og skemmtiatriði og það verður jafnvel fléttað hár. Já, þetta er vel gert og nauðsynlegt líka,” segir Jóhann.
En er stórt hlutfall erlendra íbúa í Rangárþingi ytra annars vegar og Rangárþingi eystra hins vegar?
„Hérna hjá okkur í Rangárþingi ytra eru um 20 prósent íbúa af erlendu bergi brotin og svo fjölgar heldur betur í 33 prósent í Rangárþingi eystra”, segir Jóhann.
Og er þetta ekki frábær hópur af fólki, sem er fluttur til Íslands?
„Algjörlega frábært fólk og hrikalega skemmtilegt. Þau eru með íslenskt borð líka, það er svolítið skemmtilegt og svo eru allir með sitt að malla alls konar heimsins rétti. Þetta verður algjör veisla”.
Þannig að það verður enginn svangur á Hellu í dag?
„Nei, það er alveg á hreinu, það verður enginn svangur,” segir Jóhann hlæjandi.