Maður á fimmtugsaldri var þann 5. ágúst úrskurðaður í framlengt gæsluvarðhald í fjórar vikur vegna rannsóknar á láti manns um sjötugt í heimahúsi í Salahverfi í Kópavogi sunnudaginn 26. júlí. Maðurinn var fyrst handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins þriðjudaginn 28. júlí en gæsluvarðhaldið var síðan framlengt. Samkvæmt heimildum DV situr maðurinn í einangrun á Hólmsheiði.
Það sem vitað er um mannslátið í Kópavogi