Testell sem var í eigu tónlistargoðsagnarinnar Ragnars Bjarnasonar heitins er nú á uppboði hjá Fold uppboðshúsi. Uppboðinu lýkur þriðjudaginn og má þar finna ýmsa muni á borð við keramik frá Finnlandi, Þýskalandi og Japan. Þá er verk nr. 17 sérstaklega merkt sem þrettán muna testell sem hafi verið í eigu Ragga Bjarna.
Testell eins ástsælasta söngvara íslensku þjóðarinnar á uppboði