Fyrrverandi forstjóri Icelandair telur að harkan í kjaradeilu fyrirtækisins við flugmenn tengist meðal annars því að hluthafar neiti að borga áfram með rekstrinum, sem hefur ekki skilað arði í níu ár.
„Mér heyrist að þeir líti þannig á að fjármögnun reksturs hafi gengið í gegnum þeirra hlutafé á undanförnum árum. Mér heyrist menn segja orðið bara „nei“ – um það er deilan,“ sagði Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair, í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
Lítið virðist þokast í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) sem var vísað til ríkissáttasemjara fyrir tæpum mánuði.
Jón Karl segir að hefðbundnar kjaradeilur fyrirtækisins og FÍA hafi áður átt það til að fara í hnút.
Núna heyri hann að deilan snúist um að flugmenn vilji fá aftur kjarabætur sem þeir gáfu eftir þegar heimsfaraldurinn geisaði. „Þannig heyrir maður söguna. En á sama tíma verða menn að horfa til þess að fyrirtækið Icelandair hefur ekki skilað arði í níu ár.“
Kjaradeilan er að hans mati viðkvæm og persónuleg fyrir marga og því geti verið erfitt að ræða um hvað kjarasamningarnir snúist nákvæmlega. „Þetta er viðkvæmt og getur verið erfitt að ræða.“
Hann segir að eiga þurfi samtal um hvað íslenskir vinnuveitendur eru færir um að greiða í laun. Icelandair hefur að hans viti tekist að greiða fólki góð laun. „Það eru ágætis kjör þar, ég þekki það,“ segir Jón Karl.