Pavlo Palisa, aðstoðarskrifstofustjóri forsetaembættis Úkraínu, sagði blaðamönnum að stjórnvöld í Kreml hefðu falið hershöfðingjum sínum að undirbúa árásir á borgirnar tvær. Njósnir sem Úkraínumenn hefðu fengið og staðfest bentu til þess, að því er segir í frétt Politico.
Ekkert benti þó enn til þess að Rússar væru byrjaðir að safna liði til sóknarinnar. Palisa sagði Úkraínumenn róa að því öllum árum að koma í veg fyrir að Rússar gætu sótt frekar fram.
Rússaher reyndi að taka Kænugarð með landgönguliði í upphafi allsherjarinnrásarinnar í febrúar 2022 en Úkraínumenn ráku hann á bak aftur.
Gætu hafið nýja herkvaðningu
Ýmis teikn hafa verið á lofti undanfarið um að rússnesk stjórnvöld ætli sér að stigmagna átökin. Wall Street Journal sagði frá því nýlega að þau gætu ráðist í frekari herkvaðningu.
Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA fór óvænt til Moskvu í síðustu viku til þess að tala við rússneskan starfsbróður sinn. Hann er sagður hafa varað Rússa við að efna ekki til ófriðar við aðildarríki Atlantshafsbandalagsins.
Hefna árása á olíuinnviði
Rússneska varnarmálaráðuneytið sagði um helgina að það ætlaði að láta sverfa til stáls gegn orkuinnviðum Úkraínu. Það eigi að vera hefndaraðgerð vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði Rússa á undanförnum vikum og mánuðum.
Viðvarandi rafmagnsleysi var víða í Úkraínu síðasta vetur vegna árása Rússa á orkuver og flutningskerfi.