Upplýsingabeiðni minnihluta utanríkismálanefndar, vegna fyrirhugaðrar atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, var hafnað á fundi nefndarinnar í morgun.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er ósáttur við afgreiðsluna.
„Fulltrúar minnihlutans eru vikum saman búnir að biðja um grundvallarupplýsingar í málinu. Um ferilinn núna en einnig búnir að biðja um að við fáum upplýsingar frá Evrópusambandinu um hvernig þetta horfir við þeim. Undir þetta tóku fulltrúar Feneyjanefndarinnar sem lögðu mikla áherslu á að það þyrfti að vera á hreinu hvað „Já“ hefur í för með sér og bentu á þessa leið að heyra í Evrópusambandinu og fá afstöðu þess,“ segir Sigmundur.
Meira falið í beiðninni en ósk um viðhorf
Pawel Bartoszek formaður utanríkismálanefndar Alþingis segir að hann hefði talið það óhefðbundið að senda slíka upplýsingabeiðni. Beiðnin hafi falið í sér meira en ósk um viðhorf. Einnig var óskað eftir minnisblöðum og fundargerðum.
„Ég veit ekki nokkur dæmi þess að í samskiptum ríkja þá fari ríki og óski eftir minnisblöðum hins aðilans,“ segir Pawel.
Í bókun meirihluta nefndarinnar segir að réttast sé að upplýsingaöflun afmarkist við íslensk stjórnvöld í samræmi við ákvæði þingskaparlaga. Fordæmi hafi skapast fyrir því að umsagna sé aflað frá alþjóðastofnunum sem Ísland á aðild að til að afla upplýsinga sem ekki liggja fyrir hjá íslenskum stjórnvöldum.
Pawel bendir á að Ísland eigi ekki aðild að Evrópusambandinu. „Við teljum að gögn sem eru til staðar um þetta séu aðgengileg hjá íslenskum stjórnvöldum,“ bætir hann við.