Tekið fram að svipting starfs­leyfis eigi ekki að vera refsing - Vísir

Tekið fram að svipting starfs­leyfis eigi ekki að vera refsing - Vísir

Tekið fram að svipting starfs­leyfis eigi ekki að vera refsing - Vísir

Héraðsdómur vísaði í fyrradag frá máli héraðssaksóknara á hendur honum vegna manndráps og brota gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn.

Sá úrskurður byggir á ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu um að ekki megi refsa fólki eða saksækja tvívegis fyrir sama brotið. Frávísunin var byggð á því að Skúla hafði þegar verið refsað vegna málsins þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi árið 2021.

Ellefu mál er varða Skúla komu til kasta lögreglu. Þar af voru sex andlát rannsökuð sérstaklega. Fimm þeirra mála voru felld niður en Skúli ákærður fyrir að setja sjúkling sinn, Dönu Jóhannsdóttur, í lífslokameðferð án fyllilegrar ástæðu.

Eva Hauksdóttir, lögmaður og dóttir Dönu, segir úrskurðinn vonbrigði.

Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, segir hugsunina á bak við það vera að ríkisvaldið fái almennt eitt tækifæri til að refsa fólki fyrir sama brotið. Það sé ekki hægt að refsa fólki aftur og aftur. Rétturinn hafi svo þróast í dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins.

„Til þess að reglan sé brotin þurfa þrjú skilyrði að vera uppfyllt. Í fyrsta lagi að í báðum málum reyni á refsingar í skilningi mannréttindasáttmálans, og það á sérstaklega við í þessu máli,“ sagði Hafsteinn í kvöldfréttum Sýnar í gær.

„En hin tvö skilyrðin eru, í öðru lagi, að þetta sé sama brotið sem er undir í báðum málunum og í þriðja lagi að þetta sé tvöföld endurtekin málsmeðferð. Þannig að það sé nú þegar búið að sýkna eða sakfella og svo er reynt að koma aftur.“

Hafsteinn segir Mannréttindadómstólinn leggja þrjú viðmið til grundvallar um hvað refsing sé. Aðeins eitt af þeim þurfi að vera uppfyllt.

„Það er í fyrsta lagi flokkun brotsins í Landsrétti, þannig að er þetta refsing í íslenskum rétti? Svarið hér er nei og í sjálfu sér ekki byggt á því í dómnum,“ segir Hafsteinn.

„Þá reynir á hin tvö viðmiðin sem voru undir í málinu. Það er þá annars vegar hvert er eðli brotsins? Er þetta í eðli sínu refsing? Og svo í þriðja lagi. Hver er alvarleiki viðurlaganna? Yfirleitt skoðar maður bara annað en ef hvorugt leiðir til skýrrar niðurstöðu má skoða þau saman en litið er til beggja í úrskurði héraðsdóms.“

Hafsteinn segir að í þessu tilviki reyni á grundvallarspurningu.

„Er eðli þessara viðurlaga að vera í refsiskyni? Er verið að refsa fyrir eitthvað brot eða er einhver annar tilgangur sem er að baki? Til dæmis að fyrirbyggja að öryggi sjúklinga sé stefnt í voða eða að þetta sé aðvörun, einhvers konar endurhæfingar eða agaviðurlög. En ef þetta er fyrst og fremst í þeim tilgangi þá telst þetta ekki vera refsing í skilningi mannréttindasáttmálans.“

Viðtalið við Hafstein má sjá í spilaranum hér að neðan. Það hefst eftir um tvær mínútur og tuttugu sekúndur.

Almennt sagðist Hafsteinn vilja benda á tvennt varðandi úrræði Landlæknis varðandi sviptingu læknaleyfis, eins og í tilfelli Skúla.

Það fyrsta sé að lögum um Landlækni og lýðheilsu hafi verið breytt árið 2023. Þá hafi tveir áhugaverðir punktar komið fram í athugasemdum við frumvarpið.

„Annars vegar tekur löggjafinn, eða sá sem samdi frumvarpið, afstöðu, berum orðum, til þess að þetta sé ekki refsing í skilningi þess ákvæðis. Þeir geta auðvitað haft rangt fyrir sér en þeir byggja á því.“

Hafsteinn segir þann punkt snúa að því að það komi beinlínis fram í frumvarpinu að markmiðið með þessum úrræðum sé aðvörun og endurhæfing.

„Í því sambandi er vísað í sautjándu grein þessara laga, þar sem opnað er á valmöguleikann á að fá starfsleyfið aftur, ef heilbrigðisstarfsmaður upplifir öll skilyrði, og þær aðstæður sem leiddu til sviptingarinnar eru ekki enn fyrir hendi.“

Þá sé litið þannig á úrræðið að það sé í þágu endurhæfingar.

Hinn punkturinn snýr að því að breytingin var gerð árið 2023, eftir að málsatvik í máli Skúla áttu sér stað. Þá sé ekki sjálfgefið að hægt sé að líta til þess í sakamáli. Hins vegar þurfi að túlka fimmtándu grein, þar sem kveðið er á um sviptingu starfsleyfis í ljósi forsögunnar og annarra ákvæða á þessum tíma.

„Þessi sautjánda grein, um að fá starfsleyfið aftur, var til staðar á þeim tíma sem og fjórtánda grein, sem kveður á um að Landslæknir geti beint tilmælum til heilbrigðisstarfsmanns um að bæta úr, meðal annars lögbrotum.“

Hafsteinn segir reyna sérstaklega á túlkun fimmtándu greinar laganna hvort svipting starfsleyfisins teljist refsing í skilgreiningu Mannréttindasáttmála Evrópu.

Nú sé bara spurningin hvort því verði áfrýjað og hvernig Landsréttur muni þá meta málið.

#eigi #fram #starfsleyfis #svipting #tekið

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262912702d/tekid-fram-ad-svipting-starfsleyfis-eigi-ekki-ad-vera-refsing

📰 Aðrar fréttir

Áhrifavaldur lést eftir að hann lét sprauta fylliefni í lim sinn
📅 06.09.2026 👁️ 1
Áhrifavaldur lést eftir að hann lét sprauta fylliefni í lim sinn
Bresk-nígeríski áhrifavaldurinn Igho „Tiny“ Ubiribo, betur þekktur sem Ego, lést á Taílandi í mars eftir að hann lét sprauta um 40 millilítrum af fyll...
Orðið á götunni: Dæmdur ritþjófur ræðst á fræðimenn
📅 06.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Dæmdur ritþjófur ræðst á fræðimenn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, sem verið hefur á framfæri íslensku þjóðarinnar í gegnum Sjálfstæðisflokkinn og hlotið sporslur frá auðmönnum og kvótak...
Umferðarslys á Breiðholtsbraut
📅 06.09.2026 👁️ 1
Umferðarslys á Breiðholtsbraut
Umferðarslys átti sér stað á Breiðholtsbraut skammt frá Norðlingaholti rétt fyrir klukkan eitt. Þetta kemur fram á Vísi en þar segir að slysið hafi át...
Fundu 255 ára gamlan skilding Sveins Pálssonar í Öræfum
📅 06.09.2026 👁️ 1
Fundu 255 ára gamlan skilding Sveins Pálssonar í Öræfum
Það var heldur óvenjulegur fundur sem beið gönguhóps sem var á ferð um Kvísker í Öræfum í sumar. Skildingur sem geymdur hafði verið inni í vörðu í 232...
Banda­ríkja­menn sendu ekki skip til Ís­lands - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Banda­ríkja­menn sendu ekki skip til Ís­lands - Vísir
„Já, Bandaríkin voru ekki með neinar flugvélar eða skip í Norður-Víkingi í ár,“ staðfestir ofurstinn Martin O'Donnell, háttsettur talsmaður Atlantshaf...
Ekkert óeðlilegt að ríkið sé hluti af samtalinu
📅 06.09.2026 👁️ 1
Ekkert óeðlilegt að ríkið sé hluti af samtalinu
Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir að ráðuneytið hafi verið í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins síðan í vor, þegar ljóst va...
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“ Þóra Jakobína Ol­sen Hrafns­dótt­ir fékk spurn­ingu sem hún gat ekki svar­að, fór heim og íhug­aði...
„Erfitt að vera í kjaraviðræðum þegar óvissan er svona mikil“
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Erfitt að vera í kjaraviðræðum þegar óvissan er svona mikil“
Kjaraviðræðum smábátasjómanna miðar vel áfram og Örvar Már Marteinsson, formaður Samtaka smærri útgerða, segir öruggt að samningar muni nást. Áform in...
Um­ferðar­slys við Víðidal - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Um­ferðar­slys við Víðidal - Vísir
Töluverður viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs er á svæðinu og hafa sírenur heyrst óma víða um borginni. Sést hefur til fjölmargra bifhjóla lögreglu br...
Fjöldi lög­reglu­bíla veitti Hopp-deilibíl eftir­för - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Fjöldi lög­reglu­bíla veitti Hopp-deilibíl eftir­för - Vísir
Töluverður viðbúnaður lögreglu er á svæðinu og hafa sírenur heyrst óma víða um borginni. Sést hefur til fjölmargra bifhjóla lögreglu bruna í átt að au...
Erill og nokkur ölvun á fjölmennri Ljósanótt
📅 06.09.2026 👁️ 1
Erill og nokkur ölvun á fjölmennri Ljósanótt
„Ljósanótt gekk almennt vel,“ segir Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum.Hún segir þó lögreglumenn ekki hafa mátt vera færri. Vegna gó...
Erill og nokkur ölvun á fjölmennri Ljósanótt – ungmenni kastaði flösku í lögreglumann

Erindrekar Trumps hefja viðræður við Zelensky
📅 06.09.2026 👁️ 1
Erindrekar Trumps hefja viðræður við Zelensky
Steve Witkoff og Jared Kushner, tveir af helstu erindrekum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, eru komnir til Úkraínu á fund Volodymyrs Zelensky Úkraínu...
Gengið til tíma­móta kosninga í Þýska­landi - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Gengið til tíma­móta kosninga í Þýska­landi - Vísir
Reiknað er með að AfD-flokkurinn muni vinna stórsigur í kosningunum en kannanir hafa bent til að flokkurinn hafi um 41 prósenta fylgi eftir því sem ke...
Gengið til tímamótakosninga í Þýska­landi - Vísir

Funda um fram­gang stríðsins: „Þeir eru á ó­mögu­lega slæmum stað“ - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Funda um fram­gang stríðsins: „Þeir eru á ó­mögu­lega slæmum stað“ - Vísir
Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með þeim Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasyni Bandaríkjaforseta, í þrjár klukkustundir í gær. Donald Tru...
Hand­tökur vegna líkams­á­rásar og ölvunar á Ljósanótt - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Hand­tökur vegna líkams­á­rásar og ölvunar á Ljósanótt - Vísir
Er þetta meðal þess sem Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum staðfestir í tilkynningu. Þar kemur einnig fram að fjöldi tilkynninga um ...
„Traust er auð­vitað það dýr­mætasta sem að fjöl­miðill hefur“ - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Traust er auð­vitað það dýr­mætasta sem að fjöl­miðill hefur“ - Vísir
Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofunnar þakkaði áhorfendum kvöldfrétta Sýnar fyrir að hafa kveikt á sjónvarpinu dag hvern í fjörutíu ár í tíma...
Eins og að vera kippt aftur á sjötta ára­tuginn - Vísir

Ólvun og ólæti ungmenna á Ljósanótt
📅 06.09.2026 👁️ 1
Ólvun og ólæti ungmenna á Ljósanótt
Ölvun og ólæti ungmenna var nokkur á Ljósanótt í gær, en þá náði hátíðin hápunkti með stórtónleikum og flugeldasýningu. Þetta kemur fram í tilkynningu...
Gul við­vörun vegna hvass­viðris á Suð­austur­landi - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Gul við­vörun vegna hvass­viðris á Suð­austur­landi - Vísir
Gefin hefur verið út gul viðvörun á Suðausturlandi en hún tekur gildi klukkan níu í kvöld. Þetta er meðal þess sem fram kemur á vef Veðurstofu Íslands...
Tíðindi í Kænu­garði og fortíðarkennt fjöl­miðla­um­hverfi - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Tíðindi í Kænu­garði og fortíðarkennt fjöl­miðla­um­hverfi - Vísir
Við ræðum við íbúa í úkraínsku höfuðborginni sem segir litlar vonir bundnar við það að fundir við Rússlandsforseta og Úkraínuforseta komi á frið. Viðv...
Milljarða uppbygging Borealis á Blönduósi
📅 06.09.2026 👁️ 1
Milljarða uppbygging Borealis á Blönduósi
Tugmilljarða uppbygging Borealis Data Center á Blönduósi er komin vel á veg. Fermetrafjöldi gagnaversins verður tvöfaldaður og við það skapast um 150 ...
Ó­líkt hafast þeir að for­setarnir fyrr­verandi - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Ó­líkt hafast þeir að for­setarnir fyrr­verandi - Vísir
Verkið heitir Máttur hinna veiku og er annað bindi í þriggja verka ritröð um þetta rómaða stríð sem Íslendingar sjá í rósrauðum bjarma. Þegar svo er v...
Rúmlega 40 prósent handtekinna útlendingar
📅 06.09.2026 👁️ 1
Rúmlega 40 prósent handtekinna útlendingar
Á bilinu 30,6%–43% þeirra sem handteknir árin 2019–2025 voru erlendir ríkisborgarar. Rúmlega þúsund til rúmlega tvö þúsund útlendingar voru handteknir...
Gul viðvörun á Suðausturlandi – Vegagerðin varar við hvassviðri
📅 06.09.2026 👁️ 1
Gul viðvörun á Suðausturlandi – Vegagerðin varar við hvassviðri
Vegagerðin varar vegfarendur við miklu hvassviðri frá því í kvöld og fram á annað kvöld á Suðausturlandi, einkum í Öræfum. Aðstæður geta orðið varasam...
Lést 82 ára án þess að hafa séð konu
📅 06.09.2026 👁️ 1
Lést 82 ára án þess að hafa séð konu
Árið 1938 lést grískur munkur að nafni Mihailo Tolotos. Tolotos var fæddur árið 1856 og var því 82 ára gamall. Það sem þykir merkilegt við ævi hans er...
Samband komið á í Mjóafirði
📅 06.09.2026 👁️ 1
Samband komið á í Mjóafirði
Farsíma- og netsamband komst á í Mjóafirði stuttu fyrir miðnætti í gærkvöld. Tveir ljósleiðarastrengir fóru í sundur á föstudagsmorgun sem hafði samba...
Reykjaböðin opnuð fyrir gesti í Hveragerði
📅 06.09.2026 👁️ 1
Reykjaböðin opnuð fyrir gesti í Hveragerði
Reykjaböðin, baðlón við rætur Reykjadals í Hveragerði, voru opnuð fyrir gesti í gær. „Þetta er mjög spennandi,“ segir Brynjólfur J. Baldursson, stjórn...
Business secretary to meet Jaguar Land Rover boss as thousands of job cuts expected
📅 06.09.2026 👁️ 1
Business secretary to meet Jaguar Land Rover boss as thousands of job cuts expected
The company is struggling with the impact of tariffs as well as the fallout from a major cyber attack last year.
Snert á stöðu ferða­þjónustu og fjöl­miðla í Sprengi­sandi - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Snert á stöðu ferða­þjónustu og fjöl­miðla í Sprengi­sandi - Vísir
Gestalistann skipa þau Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Logi Einarsson menningar-, nýsköðunar og háskólaráðherra.  Þv...
RÚV sé ekki fyrirstaða í lífi annarra fjölmiðla
📅 06.09.2026 👁️ 1
RÚV sé ekki fyrirstaða í lífi annarra fjölmiðla
„Ég segi fyrir mig, ég er rosalega þreytt á þessu endalausa tali um að RÚV sé einhver fyrirstaða í lífi annarra fjölmiðla, vegna þess að það er það í ...
Police slow to respond to Dover protest, says council boss
📅 06.09.2026 👁️ 1
Police slow to respond to Dover protest, says council boss
The "exceptionally well organised" protest "caught several agencies on the hoof", the leader says.
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Eftir nei-ið
📅 06.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Eftir nei-ið
Mynd Já-sinnar töpuðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29.
Bílvelta nærri Húsavík
📅 06.09.2026 👁️ 1
Bílvelta nærri Húsavík
Bíll valt á Norðausturvegi skammt frá Saltvík, sunnan við Húsavík, skömmu eftir miðnætti. Einn hlaut lítilsháttar áverka. Þetta segir Heimir Heiðarsso...
Handtekinn fyrir að stela dósum úr gámi
📅 06.09.2026 👁️ 1
Handtekinn fyrir að stela dósum úr gámi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í allmörg útköll í gærkvöldi og í nótt vegna ölvunar, slagsmála og hávaða frá samkomum í heimahúsum.Í dagbók lögreg...
Stormasamt sumar og spillingarmál sem skekja forsetaskrifstofuna
📅 06.09.2026 👁️ 2
Stormasamt sumar og spillingarmál sem skekja forsetaskrifstofuna
Það kom mörgum á óvart þegar þær fregnir bárust í júlí að Mykhailo Fedorov, varnarmálaráðherra Úkraínu, hefði verið vikið úr embætti. Mótmæli brutust ...
Skemmti­lega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Skemmti­lega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? - Vísir
Eða grænt. Eða gult. En hvers vegna vitum við þetta? Hver er sagan á bak við það að alheimurinn þekkir og skilur hver merkingin er á bak við rautt, gu...
Var at­vinnu­laus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók á­kvörðun sem breytti öllu - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Var at­vinnu­laus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók á­kvörðun sem breytti öllu - Vísir
Í dag eru þrettán ár liðin frá því Sunna Ben drakk síðast áfengi. Á þeim tíma hefur hún byggt upp fjölbreyttan feril sem ljósmyndari og DJ, stofnað fj...
Lægð nálgast landið
📅 06.09.2026 👁️ 2
Lægð nálgast landið
Nokkuð víðáttumikil lægð stefnir ört í átt að landi úr suðri. Í dag verður vaxandi norðaustan- og austanátt víða um land.Síðdegis verður yfirleitt 8-1...
Út­lendingar kærðir fyrir að fram­vísa ekki skil­ríkjum - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Út­lendingar kærðir fyrir að fram­vísa ekki skil­ríkjum - Vísir
Lögreglan í Kópavogi og Breiðholti greinir frá því að í nótt hafi verið tilkynnt um hávaða frá íbúð. Um hafi verið að ræða hóp útlendinga sem hafi síð...
One lucky winner in Tenerife scoops €1.3 million Bonoloto jackpot
📅 06.09.2026 👁️ 2
One lucky winner in Tenerife scoops €1.3 million Bonoloto jackpot
Someone in Tenerife has woken up this morning more than €1.3 million richer after matching all six numbers in Saturday night's Bonoloto lottery draw.A...
Heimskortið sem þú þekkir er rangt
📅 06.09.2026 👁️ 1
Heimskortið sem þú þekkir er rangt
Heimskortið sem þú þekkir er rangt SÞ samþykkja stórbreytinguHenda gamla kortinu í ruslið Mynd: UN Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt sö...
Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður - Vísir
Hnífurinn var haldlagður og skráður í kerfi lögreglu. Frá þessu er greint í dagbók lögreglu en málinu er ekki lýst frekar.  Þar segir að lögreglan á s...
Kjörstaðir opnaðir í Saxlandi-Anhalt þar sem AfD gæti tryggt sér meirihluta á þingi
📅 06.09.2026 👁️ 2
Kjörstaðir opnaðir í Saxlandi-Anhalt þar sem AfD gæti tryggt sér meirihluta á þingi
Kjörstaðir hafa verið opnaðir vegna þingkosninga í þýska sambandslandinu Saxlandi-Anhalt. Það er í austurhluta Þýskalands, hluti þess sem áður var Aus...
Vara við snörpum hviðum - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Vara við snörpum hviðum - Vísir
Í veðurspá og hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að suður í hafi sé fremur víðáttumikil lægð sem stefni ört í átt að landi og í dag...
UPDATE: 5-year-old boy dies after drowning in Lanzarote hotel swimming pool
📅 06.09.2026 👁️ 2
UPDATE: 5-year-old boy dies after drowning in Lanzarote hotel swimming pool
A five-year-old boy who was left in a critical condition after a drowning incident at a hotel swimming pool in Lanzarote, where he was on holiday with...
Meðaljón hátekjulistans er miðaldra Jón
📅 06.09.2026 👁️ 1
Meðaljón hátekjulistans er miðaldra Jón
Meðaljón hátekjulistans er miðaldra Jón Til að kom­ast inn á há­tekju­list­ann eru lík­urn­ar með þér ef þú heit­ir Jón og ert á sex­tugs­aldri. Heim­...
Gran Canaria village fights to save its unique ‘Potato Dance’ tradition
📅 06.09.2026 👁️ 2
Gran Canaria village fights to save its unique ‘Potato Dance’ tradition
Residents of one of Gran Canaria’s most remote communities are fighting to preserve an unusual tradition that has been bringing generations together f...
SUNDAY WEATHER: Calima and temperatures of up to 37°C forecast in the Canaries
📅 06.09.2026 👁️ 2
SUNDAY WEATHER: Calima and temperatures of up to 37°C forecast in the Canaries
The Canary Islands are facing another hot and hazy day today (Sunday), as the calima continues to affect the archipelago and temperatures climb well i...