Greint er frá því í tilkynningu að D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, E-listi listi Strandar og Voga og L-listi Listi fólksins hafi myndað nýjan fimm fulltrúa meirihluta í Vogum.
Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti D-listans, verður bæjarstjóri sveitarfélagsins.
Birgir Örn Ólafsson hjá E-listanum verður formaður bæjarráðs og Kristinn Björgvinsson hjá L-listanum verður forseti bæjarstjórnar.
Alls eru sjö manns í sveitarstjórn Voga en í sveitarstjórnarkosningunum í maí hélt D-listinn sínum þremur fulltrúum, en E-listinn og L-listinn hlutu einn hvor. A-listinn Fyrir samfélagið hlaut þá tvo fulltrúa.
Á liðnu kjörtímabili voru E-listinn og D-listinn í sex manna meirihluta og reyndar hefðu flokkarnir getað haldið meirihlutasamstarfi sínu áfram þrátt fyrir að E-listinn hafi misst tvo menn milli kosninga. Þeir hafa þó ákveðið að taka L-listann með sér í samstarfið.
Í fréttatilkynningu skrifa meirihlutaflokkarnir að byggja á þeim grunni sem lagður var á liðnu kjörtímabili og því samstarfi sem tókst um verkefni fyrir sveitarfélagið. Á sama tíma verði horft fram á veginn með áherslu á traustan rekstur, öfluga þjónustu, betri upplýsingagjöf og markvissa uppbyggingu í góðu samtali við íbúa.
Samstarfið byggi á málefnasamningi sem miði að því að styrkja sveitarfélagið til framtíðar, efla þjónustu í heimabyggð, styrkja innviði, styðja við fjölskyldur og skapa betri skilyrði fyrir atvinnulíf og félagsstarf í vaxandi og öflugu samfélagi.
„Við erum þakklát fyrir það traust sem íbúar sýndu okkur í kosningunum og göngum auðmjúk en ákveðin til verka. Framundan eru stór verkefni en líka mikil tækifæri. Nýr meirihluti mun leggja áherslu á góða samvinnu, skýra forgangsröðun, gott samtal við íbúa og áframhaldandi uppbyggingu í takt við þarfir samfélagsins,“ er haft eftir Björgu Ástu Þórðardóttur, verðandi bæjarstjóra.
Björg var í skamma stund framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins en hætti nokkrum mánuðum síðar til þess að fara í framboð í heimabænum.
Málefnasamningur meirihlutans verður kynntur nánar á næstu dögum, samkvæmt tilkynningunni.