Sjónvarpsstöðin Sýn sendir í kvöld út sinn síðasta fréttatíma. Einnig verður þátturinn Ísland í dag sleginn af.
Í tilkynningu frá Sýn segir að ákvörðunin sé „tekin í ljósi breyttra neysluvenja almennings þar sem sífellt fleiri sækja sér fréttir og fréttatengt efni á stafrænum miðlum. Sýn mun því beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og leggja áherslu á að miðla fréttum þar sem eftirspurn eftir fréttaefni er mikil.“
Í tilkynningunni segir að styrkja eigi fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og tryggja grundvöll fyrir sjálfbærum rekstri.
Sjónvarpsfréttir hafa verið lykilþáttur í starfsemi sjónvarpsstöðvarinnar sem hét Stöð 2 frá stofnun 1986 þar til nafninu var breytt í fyrra og tengt við fjarskiptafyrirtækið sem á fjölmiðilinn.
Í tilkynningu Sýnar segir að fréttaneysla hafi í auknum mæli færst frá línulegu sjónvarpi yfir á stafræna miðla. Samhliða því hafi tekjugrunnur innlendra fjölmiðla veikst. Meirihluti auglýsingatekna fór til alþjóðlegra tæknirisa 2024, samkvæmt tölum Hagstofunnar og segir Sýn að þetta geri samkeppni einkarekinna miðla við Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði að enn meiri áskorun. Fyrirtækið segir að tillögur stjórnvalda hafi ekki nægjanleg áhrif á rekstur sjónvarpsfrétta til að þær geti breytt niðurstöðunni.
Síðustu mánuði stóðu yfir viðræður milli Sýnar og Ása, móðurfélags Símans, um kaup þeirra síðarnefndu á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Þær viðræður runnu út í sandinn í síðustu viku. Meðan á því stóð ríkti óvissa um sjónvarpsfréttir Sýnar en ekkert var gefið út um þær fyrr en í dag.
Fréttin hefur verið uppfærð.