Mynd er nú komin á Þjóðarhöllina, fjölnota íþróttamannvirki, sem á að rísa í Laugardalnum, en búið er að velja úr tilboðum um hönnun og byggingu mannvirkisins sem verður reist í Laugardalnum og nýtt til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. Frá þessu greinir Stjórnarráðið í tilkynningu þar sem fram kemur að tilboð Íslenskra aðalverktaka hafi orðið fyrir valinu.
Í tilkynningu segir:
„Nú er komin mynd á nýja og glæsilega Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki sem mætir kröfum nútímans með fyrirmyndaraðstöðu fyrir landslið, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. Þjóðarhöll ehf., fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, hefur valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal.“
Árið 2024 var auglýst eftir teymum til að taka verkefnið að sér og var markmiðið að velja hóp aðila til að annast framkvæmdina frá upphafi til enda, allt frá hönnun að fullkláruðu mannvirki. Í forvali voru þrjú teymi valin til þátttöku í samkeppnisútboði. Tvö endanleg tilboð bárust, annars vegar frá teymi Ístaks og hins vegar frá teymi Íslenskra aðalverktaka. Þrettán manna matsnefnd tók afstöðu til 32 ítarlegra matsliða á grundvelli krafna ríkis og borgar til mannvirkisins. Horft var til þess að tryggja framúrskarandi gæði í hönnun, byggingu og rekstri Þjóðarhallar með áherslu á notagildi, útlit, frágang, aðgengi, sjálfbærni og hagkvæmni.
Tilboðið sem varð fyrir valinu er að fjárhæð 16,8 milljarða króna með virðisaukaskatti. Tækifæri til hagræðingar eru sögð til staðar samhliða samningagerð og fullnaðarhönnun án þess að það þurfi að breyta kröfum um gæði og notagildi.


Í tilkynningu segir:
„Ný Þjóðarhöll mun umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla.
Hún mun rísa í hjarta Laugardals, sunnan Laugardalshallar, með góðri tengingu við borgarlínu, göngu- og hjólaleiðir og fyrirliggjandi mannvirki: Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöll. Notendur verða íþróttafélög, landsliðshópar sérsambanda fyrir æfingar og keppni, skólar í nágrenninu, háskólar fyrir íþróttakennslu og ýmsir viðburðahaldarar.
Höllin verður aðgengileg öllum, vettvangur lýðheilsuverkefna og samkomustaður íþróttafólks og almennings með tilheyrandi veitingarekstri sem tengist safnsvæði áhorfenda.“