Stór hópslysaæfing fer nú fram á Bakkaflugvelli í Landeyjum þar sem stórt rútuslys er sett á svið. Varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi segir æfingu eins og þessa mjög mikilvæga.
Hópslysaæfingin hófst klukkan 10 í morgun og stendur fram eftir degi. Æfingin hefur verið lengi í undirbúningi þannig að hún geti gengið, sem allra best. Þorsteinn M. Kristinsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi er einn af skipuleggjendum æfingarinnar.
„Að þessu koma fjöldi viðbragðsaðila á Suðurlandi, þar að segja lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningar, björgunarsveitir og auk þess þyrla Landhelgisgæslunnar,” segir Þorsteinn.
Er þetta stórt rútuslys?
„Já, það er miðað við að tuttugu til þrjátíu manns í slysinu.”
Þorsteinn segir að vegfarendur geti átt von á umferð viðbragðsaðila í Landeyjunum á meðan á æfingunni stendur.
En hversu nauðsynlegt er að halda æfingu sem þessa?
„Það er alveg gríðarlega mikilvægt að æfa svona hluti. Við förum eftir ákveðnu kerfi, sem þarf að æfa mjög reglulega þannig að viðbrögð við svona slysum séu eins smurð og hægt er að hafa það,” segir Þorsteinn.
Og þú átt von á því að dagurinn takist vel og allir séu að leggja sig fram?
„Já, það held ég, allir glaðir. Þetta gengur vel og við erum ánægð með að fá tækifæri til þess að æfa okkur á þennan hátt,” segir Þorsteinn.