Á sama tíma og forystufólk Evrópusambandsins er mjög jákvætt gagnvart framhaldi aðildarviðræðna Íslands við sambandið og gefur til kynna að ríkt tillit verði tekið til sérstöðu Íslands, ekki síst í sjávarútvegi, hamast Sjálfstæðisflokkurinn, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Morgunblaðið við að finna einstaka stjórnmálamenn í aðildarríkjum ESB og fá þá til að aftaka undanþágur með öllu. Þetta vinnur gegn hagsmunum Íslands. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Sveinn Andri Sveinsson: Moldvörpur í óvinahernaði gegn hagsmunum Íslands