Útlit er fyrir að hiti verði um frostmark á norðan- og austanverðu landinu í dag og þar eru líkur á éljum að auki. Annars staðar verður þurrt að kalla en líkur eru á stöku skúrum syðst á landinu annað kvöld.
Norðanátt verður ríkjandi í dag og næstu daga en veður fer hlýnandi á föstudag og laugardag.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðlæg átt fimm til þrettán metrar á sekúndu. Él norðan- og austantil, en annars þurrt að kalla. Líkur á stöku skúrum syðst á landinu annað kvöld.
Norðaustan átta til þrettán og él á morgun, en yfirleitt bjart veður sunnan- og vestanlands.
Hiti um frostmark á norðan- og austanverðu landinu en að 7 stigum sunnanlands.