Ólíklegt er að fylgiskjálftar jarðskjálfta að stærð 4,5 sem varð á Mosfellsheiði rétt fyrir klukkan 14 í dag verði mikið stærri en 3,3 að stærð, en þó leynast fleiri sprungur á svæðinu sem kunna að búa yfir uppsafnaðri spennu sem gæti losnað úr læðingi sökum hrinunnar.
Þetta segir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Engin aflögun hefur mælst á svæðinu enn sem komið er, en þó er ekki hægt að fullyrða um það með óyggjandi hætti þar til nýjustu mælingar berast á morgun.
Ekkert bendir til kvikusöfnunar
Svæðið sem um ræðir er ekki jafn þétt vaktað og önnur skjálftasvæði, til að mynda svæðið í grennd við Sundhnúkagíga, og því munu áreiðanlegar upplýsingar um aflögun á svæðinu líklega ekki berast fyrr en á morgun samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.
Jóhanna segir ekkert þó benda til aflögunar eða kvikusöfnunar á svæðinu, heldur séu skjálftarnir einungis hefðbundin spennulosun sem tíð sé á svæðinu.
„En það er engin aflögun á svæðinu samkvæmt mælingum og ekkert sem bendir til kvikusöfnunar þar eða annars heldur en frekar hefðbundinna sprunguhreyfinga á norður-suður-sprungu.“
Ekki á niðurdælingarsvæði Carbfix
Þá sé enginn grundvöllur sé fyrir vangaveltum sem sést hafa í ummælakerfum víða um netið þess efnis að niðurdælingar Carbfix á kolefnisgasi djúpt ofan í jörð kunni að hafa eitthvað með hrinuna að gera, enda mælist skjálftar undanfarinna daga eilítið vestar en þeir niðurdælingarskjálftar sem mælst hafa.
„Við erum í góðum samskiptum við starfsfólk á Hellisheiðinni varðandi það og það eru engar breytingar á niðurdælingu hjá þeim, þannig að það er ekkert sem bendir til annars en að þetta sé hefðbundin spennulosun vegna flekahreyfinga jarðar,“ segir Jóhanna.
Fleiri stórir ólíklegir
Hún segir það ólíklegt að fleiri stórir skjálftar verði.
„Þessi hrina hefur bara verið með þennan eina stórskjálfta í dag að stærð 4,5, og honum fylgja auðvitað talsvert mikið af eftirskjálftum allt að 3,3 að stærð sem gætu fundist í byggð.“
Það séu þó ekki útilokað að uppbyggð spenna í öðrum sprungum á svæðinu gæti losnað og valdið öðrum stórskjálfta.
„Það eru margar fleiri sprungur á þessu svæði sem gætu verið með uppbyggða spennu og gætu farið af stað, þannig að þetta svæði hefur alveg innistæðu fyrir stærri skjálfta,“ segir hún. „En við teljum það ólíklegt að við sjáum mikið meira en 3,3 í dag og næstu daga.“