Alls bárust fjögur tilboð í verkið og munaði tiltölulega litlu á tilboðsfjárhæðum. Borgarverk átti næstlægsta boð, upp á liðlega 5,1 milljarð króna, eða 99 prósent af kostnaðaráætlun. Hin tvö tilboðin voru bæði lítillega yfir áætluðum verktakakostnaði. Ístak bauðst til að vinna verkið fyrir rétt liðlega 5,3 milljarða króna, sem er 2,6 prósentum yfir áætluðum kostnaði, en Íslenskir aðalverktakar áttu hæsta boð, upp á tæplega 5,4 milljarða króna, sem er 4 prósentum hærra en áætlun.
Verktakafyrirtækin Suðurverk og Fossvélar eiga bæði sunnlenskar rætur. Rangæingurinn Dofri Eysteinsson er eigandi Suðurverks og Árnesingurinn Jón Örn Ingileifsson eigandi Fossvéla. Þeir hafa áður boðið saman í verk. Þannig náðu þeir að verða lægstbjóðendur í jarðvegsvinnu vegna Hvammsvirkjunar, í verkefni bæði í fyrra og aftur í ár.
Verði gengið að tilboði Sunnlendinganna hafa þeir, samkvæmt útboðslýsingu Vegagerðarinnar, þrjú ár til að klára breikkun þessa 5,6 kílómetra langa kafla. Verkinu á að vera að fullu lokið þann 30. september árið 2029.
Vegarkaflinn nær frá Vallá og að Hvalfjarðarvegi. Þar verða tvö hringtorg og tvenn ný undirgöng, við Grundarhverfi og við Arnarhamar. Einnig á að framlengja núverandi undirgöng við Klébergsskóla og leggja hliðarvegi og stíga. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna, Ljósleiðarans og Mílu.