Lögreglan á Spáni hefur leyst upp glæpasamtök sem stunduðu bíræfna svikastarfsemi gagnvart eldri borgurum. Hópurinn gaf út falsaðar rukkanir og lét fólk afsala sér heimilum sínum.Spænski miðillinn Canarias Noticas greinir frá þessu.Spænska lögreglan hefur leyst upp fjársvikahóp sem beitti sér gegn eldra fólki víða um Spán. Samhæfð aðgerð fór fram í tíu borgum og bæjum, þar á meðal höfuðborginni Madríd, Leganes, Getafe og Valdemoro.
Leystu upp bíræfið svikagengi á Spáni – Fengu eldri borgara til að afsala sér heimilum sínum