Annar tveggja skipverja Dettifoss, sem ákærður er í máli sem varðar innflutning á um 14 lítrum af amfetamínbasa, segist hafa upplifað að hann ætti erfitt með að neita þátttöku í málinu. Hafi hann ekki einu sinni verið búinn að ákveða að taka að sér smyglið þegar skipinu var siglt frá Grænlandi til Þýskalands. Þetta kom fram í aðalmeðferð málsins sem fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Dettifossmálið - „Ég var meira að pæla í því að lifa af“