Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn sinni á banaslysi sem varð á Fjarðarheiði 3. desember í fyrra. Einn lést í slysinu.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að tvær orsakir væru fyrir slysinu.
Meginorsökin var sú að annar ökumaðurinn missti stjórn á bíl sínum í beygju í hálku, bíllinn fór yfir á gagnstæðan vegarhelming og skall á fólksbíl sem kom úr hinni áttinni. 87 ára karlmaður sem var farþegi í síðari bílnum lést.
Önnur orsök slyssins að mati nefndarinnar er sú að ökumaður bílsins sem lenti á vitlausum vegarhelmingi hafi ekið of hratt miðað við aðstæður. 90 kílómetra hámarkshraði er á veginum og 60 kílómetra leiðbeinandi hámarkshraði þar sem slysið varð. Maðurinn ók bílnum á 59 kílómetra hraða fimm sekúndum fyrir slysið. Nefndin segir að það hafi verið of mikill hraði miðað við aðstæður. Snjór og hálka var á veginum og veggrip því skert.
Átta voru í bílunum tveimur þegar slysið varð, ökumaður og þrír farþegar í hvorum bíl um sig. Allir voru í belti. Maðurinn sem lést hlaut fjöláverka og lést af völdum þeirra. Farþegi í sama bíl var lagður inn á sjúkrahús vegna áverka sem hann hlaut í slysinu. Aðrir slösuðust ekki alvarlega.