Óttinn við að vera of venju­leg drif­krafturinn - Vísir

Óttinn við að vera of venju­leg drif­krafturinn - Vísir

Óttinn við að vera of venju­leg drif­krafturinn - Vísir

Emma er þakklát fyrir öll tískuslys fortíðarinnar og hefur gríðarlegan áhuga á klæðaburði og stíl. Hún er hægt og rólega að sleppa alfarið tökum á áliti annarra og elskar fátt meira en að klæða sig upp. Blaðamaður ræddi við Emmu um margbreytileika tískunnar.

Emma fer eigin leiðir í klæðaburði og hefur gaman að því að skera sig úr.Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Mér finnst svo gaman að geta smám saman byggt upp mitt eigið safn af fötum sem ég hef sjálf komið auga á í nytjabúðum og eru ekki eitthvað sem maður sér á hverjum einasta manni.

Mér finnst líka svo fallegt hvað föt geta orðið persónuleg og þýtt mikið fyrir mann. Fataskápurinn minn er eins og safn sem ég hef byggt upp með tímanum og segir ótrúlega mikið um hver ég er.

Fataskápur Emmu segir til um hver hún er.Aðsend

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Uppáhaldsflíkin mín er bleik blússa sem ég „triftaði“ í Búdapest og sægrænn pels sem ég keypti um daginn í Mamma Mia Vintage. Við erum að tala um það að ég er spennt fyrir íslenska vetrinum svo ég geti búið í pelsinum mínum. 

Síðan á ég líka vatnshelda þykkbotna skó í kamúflage-mynstri sem ég nota ótrúlega mikið. Þeir eru örugglega bestu kaup sem ég hef gert, bæði af því þeir þola allt og þeir krydda upp á klæðaburðinn.

@emmakjartans Var að kaupa fallegasta pels í heimi í @MAMMA MIA VINTAGE 🫦 my uniform from now on #fur #fyrirþig #beautiful ♬ bay - percinmyfanta

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Það fer algjörlega eftir því hvort ég er í góðu flæði eða ekki. Ef ég er ekki að fíla mig getur það tekið mjög langan tíma, en ég neita að fara út úr húsi ef mér líður ekki vel með klæðaburðinn.

Stundum kemur þetta bara til mín náttúrulega og það eru alltaf bestu lúkkin. Lykillinn er að vera „feik“ alveg sama og þá kemst maður í flæðið.

Lykillinn er að vera feik alveg sama og rokka það sem maður vill segir Emma.Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Stíllinn minn er oft frekar feminine, en ég vil eiginlega alltaf hafa eitthvað aðeins hrátt eða vítt (e. oversized) á móti. Ég er mjög hrifin af kontrasti, að blanda saman andstæðum eins og einhverju mjög elegant og rómantísku við eitthvað götótt eða rifið, eða þá að blanda einhverju gamaldags við eitthvað nútímalegt.

Það er bara geðveikt gaman að koma fólki á óvart með því að blanda saman hlutum sem ættu ekki endilega að passa saman.

Emma elskar að blanda andstæðum saman.Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Á síðustu þremur árum hefur stíllinn minn breyst heilmikið og er ennþá á stöðugri breytingu. Ég hef gaman af því að prófa nýja hluti en skipti líka oft um skoðun eða fæ ógeð af hlutum.

Emma hefur gaman að því að prófa sig áfram í klæðaburðinum. Aðsend

Nýturðu þess að klæða þig upp?

Lífið er einfaldlega skemmtilegra þegar maður klæðir sig upp, svo ég reyni að leggja smá metnað í það á hverjum degi. Það þarf ekkert sérstakt tilefni til að líta út eins og meistaraverk, en það er alltaf gaman að sýna sig og sjá aðra. 

Ég klæði mig auðvitað fyrst og fremst fyrir sjálfa mig, en það væri líka frekar dapurlegt að skapa öll þessi listaverk og sýna aldrei neinum þau.

Það er synd að leggja mikinn metnað í klæðaburð sem enginn sér!Aðsend

Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði?

Look good, feel good. Feel good, look good, perform good.“ Ef mér líður vel með sjálfa mig er ég óstöðvandi. Ég elska föt sem eru flott en þægileg á sama tíma. Í augnablikinu er ég mikið fyrir blöðrubuxur. Það er hægt að finna mjög fallegar og snyrtilegar slíkar buxur sem eru jafn þægilegar og náttföt, sem ég elska.

Ég er ekkert sérlega mikil morgunmanneskja og mér finnst oft erfitt að fara snemma á fætur og nenni því ekki mikið að pæla í klæðaburðinum. Þá er ekkert betra en að geta hoppað í þægilegar buxur sem eru líka geðveikt kúl.

Síðan er stór plús að blöðrubuxur dragast inn við ökklana, þannig að ég slepp við að draga þær eftir jörðinni og fæ líka að sýna skóna almennilega. Það væri synd að fela fallega skó undir buxunum.

Emma elskar blöðrubuxur og fallega skó.Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Ég horfi í allar áttir, pikka út það sem mér líkar best við og blanda því síðan saman eða breyti því. Ég held líka að ákveðinn ótti við að vera of venjuleg veiti mér mikinn innblástur.

Ég byrjaði að klæða mig vel þegar ég fattaði hvað það skiptir mig miklu máli að vera pínu öðruvísi og mér finnst gaman að fylgja tískunni að einhverju leyti en setja alltaf minn eigin svip á hana.

Emma sækir alveg innblástur í skemmtileg trend en heldur alltaf í sjálfa sig. Aðsend

Ertu með einhver boð og bönn þegar kemur að klæðaburði?

Reglur eru leiðinlegar og eiga ekki heima í tískuheiminum. Klæðnaður er listform og leið til sjálfstjáningar, svo mér finnst hver og einn eigi að fá að finna sína eigin leið. Það er hins vegar alveg bannað að dæma klæðaburð þeirra sem eru pínu out there þegar maður klæðir sig sjálfur eins og hver annar maður á götunni.

Bannað að dæma þá sem taka tískuáhættu!Aðsend

Áttu eitthvað eftirminnilegt tískuslys og hvernig var það?

Þegar ég lít til baka get ég auðveldlega spottað mörg föt sem ég myndi ekki klæðast í dag, en aftur á móti fannst mér ég vera algjör bomba á þeim tíma þannig að það er svo sem alveg ásættanlegt. Í hverjum mistökum felst lærdómur en í hverri áhættu felst möguleiki, þú veist.

Í hverri áhættu felst möguleiki.Aðsend

Spilar álit annarra eitthvað hlutverk í þínu fatavali?

Ég vildi auðvitað óska þess að ég gæti svarað þessari spurningu neitandi, en því miður hef ég ekki enn náð að endurforrita heilann nógu vel til að vera alveg sama, forritarar sendið mér endilega skilaboð.

Þó að álit annarra spili vissulega inn í byggi ég ákvarðanir mínar ekki á því og idgaf, eða mér er drullusama, hugarfarið styrkist með hverjum deginum.

Sjálfstraust Emmu eykst með hverjum deginum.Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Eftirminnilegasta flík sem ég hef klæðst eru rifnar gallabuxur sem ég átti í grunnskóla. Málið er að þetta voru ekki bara einhverjar venjulegar rifnar gallabuxur, haltu þér fast, það voru bleikar pallíettur í götunum. Ég veit. Ég valdi fatahönnun bara til að læra að búa til svona buxur, djók. Ég sakna þeirra.

Emma er í fatahönnun og er hrifin af rifnum gallabuxum.Aðsend

Hvað finnst þér heitast í tískunni fyrir haustið?

Ég verð eiginlega að segja bomber-jakkar í alls konar litum eða stórir pelsar sem hægt er að henda sér í yfir hvað sem er. Það getur ekki klikkað og er bara svo hentugt. Ó og líka kúl hattar, fyrst og fremst til að skýla andlitinu frá úrkomu.

Bomber-jakkar eru alltaf klassískir. Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar kemur að tísku?

Meikyō shisui (明鏡止水) er japanskt orðatiltæki sem þýðir „tær spegill og kyrrt vatn“. Það snýst um að vera rólegur og sannur sjálfum sér, óháð því sem gengur á í kringum mann. Mér finnst það mjög gott tískuráð líka, að finna sinn eigin smekk og vera nógu öruggur til að þurfa ekki stöðugt að elta trend eða samþykki annarra.

#drifkrafturinn #venjuleg #vera #við #óttinn


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262934903d/ottinn-vid-ad-vera-of-venju-leg-drif-krafturinn

📰 Aðrar fréttir

Segja fjárfesta með tengsl við Trump hafa keypt hús fyrir eiginmann Motzfeldt
📅 16.09.2026 👁️ 1
Segja fjárfesta með tengsl við Trump hafa keypt hús fyrir eiginmann Motzfeldt
Hópur bandarískra fjárfesta með tengsl við Donald Trump Bandaríkjaforseta er sagður hafa keypt hús fyrir grænlenska kaupsýslumanninn og fyrrverandi st...
Meðlimur Pussy Riot opnar sýningu á föstudag
📅 16.09.2026 👁️ 1
Meðlimur Pussy Riot opnar sýningu á föstudag
SWEAT and BLOOD, ný sýning Diönu Burkot opnar í SIND gallery, Hringbraut 122, föstudaginn 18. september kl. 18. Burkot er meðlimur í Pussy Riot, hún e...
Reiði í Vestmannaeyjum eftir að menn skutu dúfur úti í hrauni – „Ljóta villimennskan“
📅 16.09.2026 👁️ 1
Reiði í Vestmannaeyjum eftir að menn skutu dúfur úti í hrauni – „Ljóta villimennskan“
Myndir af blóðugum dúfnahræjum og skothylkjum á víðavangi í Vestmannaeyjahrauni hafa valdið ólgu í Facebook-hópnum „Dýravinir Vestmannaeyja“. Ekki er ...
Dettifossmálið: Sakar ákæruvaldið um vegferð gegn sér - „Ég er ekki Cloud“
📅 16.09.2026 👁️ 1
Dettifossmálið: Sakar ákæruvaldið um vegferð gegn sér - „Ég er ekki Cloud“
Áfram heldur aðalmeðferð í svokölluðu Dettifossmáli þar sem fjórir svara til saka fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Ákærðu, Sævari Erni Hilmarssyni, ...
Leystu upp bíræfið svikagengi á Spáni – Fengu eldri borgara til að afsala sér heimilum sínum
📅 16.09.2026 👁️ 1
Leystu upp bíræfið svikagengi á Spáni – Fengu eldri borgara til að afsala sér heimilum sínum
Lögreglan á Spáni hefur leyst upp glæpasamtök sem stunduðu bíræfna svikastarfsemi gagnvart eldri borgurum. Hópurinn gaf út falsaðar rukkanir og lét fó...
Kannast ekkert við málið og segir lög­reglu hafa komið fíkni­efnum fyrir - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Kannast ekkert við málið og segir lög­reglu hafa komið fíkni­efnum fyrir - Vísir
Kastriot mætti síðastur fjögurra sakborninga fyrir dóm og gaf skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins í dag. Honum er gefið að sök að hafa skipulag...
80% barna í 4.-5. bekk á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að hafa ekki aldur til
📅 16.09.2026 👁️ 1
80% barna í 4.-5. bekk á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að hafa ekki aldur til
80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Í skilmálum flestra samfélagsmiðla er kveðið á um að þeir séu bannaðir...
Andy Burnham and his chancellor have a battle on their hands
📅 16.09.2026 👁️ 1
Andy Burnham and his chancellor have a battle on their hands
The Budget is only six weeks away and the economy is undoubtedly the biggest challenge facing the prime minister.
Eight German state premiers back Merz amid speculation over his future
📅 16.09.2026 👁️ 1
Eight German state premiers back Merz amid speculation over his future
Christian Democratic Union leadership throws its weight behind the chancellor ahead of two state elections this weekend.
'Putney pusher' suspect found dead at home
📅 16.09.2026 👁️ 1
'Putney pusher' suspect found dead at home
Nicholas Brandram was a suspect in the incident where a woman was shoved into the path of a bus nine years ago.
Hashim Thaçi dæmdur fyrir stríðsglæpi í Kósovó-stríðinu
📅 16.09.2026 👁️ 1
Hashim Thaçi dæmdur fyrir stríðsglæpi í Kósovó-stríðinu
Hashim Thaçi, fyrrverandi forseti Kosóvó, var í morgun dæmdur sekur um stríðsglæpi og til 25 ára fangelsisvistar.Réttað var yfir Thaci og þremur öðrum...
Blindfullum ung­lingum fækkar - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Blindfullum ung­lingum fækkar - Vísir
Embætti landlæknis kynnti Lýðheilsuvísa ársins 2026 á Egilsstöðum í dag. Þar eru teknar saman niðurstöður úr könnunum og opinberum skrám um meðal anna...
Blendnar til­finningar á Degi ís­lenskrar náttúru - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Blendnar til­finningar á Degi ís­lenskrar náttúru - Vísir
„Í dag ætlum við að halda upp á Dag íslenskrar náttúru með fögnuði í Tónabíói klukkan fimm þar sem allir eru velkomnir. Það er alltaf fagnaðarefni að ...
Schools in England get extra £500m in bid to avoid teacher pay strike
📅 16.09.2026 👁️ 1
Schools in England get extra £500m in bid to avoid teacher pay strike
The offer of extra money by the government reduces the prospect of strike action by the largest teaching union.
Þrjá­tíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matar­veislu - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Þrjá­tíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matar­veislu - Vísir
„Það er erfitt að nefna eitt atriði sem stóð upp úr því dagurinn varð mun stærri og glæsilegri en ég þorði að vona. Ef ég ætti þó að velja eitt væri þ...
90 ár frá strandi Pourquoi Pas?
📅 16.09.2026 👁️ 1
90 ár frá strandi Pourquoi Pas?
Franska rannsóknaskipið Pourquoi Pas? var statt fyrir utan Reykjanes þann 15. september 1936 þegar veðrið fór að versna. Skipið hélt inn á Faxaflóa ti...
Dæmdur fyrir peningaþvætti vegna fíkniefnabrota
📅 16.09.2026 👁️ 1
Dæmdur fyrir peningaþvætti vegna fíkniefnabrota
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í gær til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti. Hann var ákærður fyrir að taka ítrekað...
Microsoft says AI rival Anthropic could have 'disastrous impact' on humanity
📅 16.09.2026 👁️ 1
Microsoft says AI rival Anthropic could have 'disastrous impact' on humanity
Mustafa Suleyman says he believes the AI giant is in effect teaching Claude it "may be conscious".
Dettifossmálið - „Ég var meira að pæla í því að lifa af“
📅 16.09.2026 👁️ 2
Dettifossmálið - „Ég var meira að pæla í því að lifa af“
Annar tveggja skipverja Dettifoss, sem ákærður er í máli sem varðar innflutning á um 14 lítrum af amfetamínbasa, segist hafa upplifað að hann ætti erf...
„Burðardýr“ sem hafi ekki þorað öðru en að klára verkefnið
📅 16.09.2026 👁️ 2
„Burðardýr“ sem hafi ekki þorað öðru en að klára verkefnið
Aðalmeðferð í Dettifossmálinu svokallaða hófst í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Alls eru fjórir ákærðir og snýst málið um smygl á rúmum 14 lítrum af...
Wolt sendlar lögðu niður störf – Segjast tapa á því að sendast með pantanir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Wolt sendlar lögðu niður störf – Segjast tapa á því að sendast með pantanir
Sendlar sem starfa fyrir heimsendingarfyrirtækið Wolt hér á landi lögðu niður störf tímabundið í dag. Þetta gerðu þeir til að ná athygli forsvarsmanna...
CCTV shows last sighting of Noah Woods
📅 16.09.2026 👁️ 2
CCTV shows last sighting of Noah Woods
Suffolk Police released CCTV of the last confirmed sighting of Noah in the park in Brantham at 14:37 BST on Tuesday.
Former Cambridgeshire officer jailed for 'toxic' WhatsApp culture
📅 16.09.2026 👁️ 1
Former Cambridgeshire officer jailed for 'toxic' WhatsApp culture
Former officer who asked for a suspect's sex video to show "the lads from footy" is jailed for four years.
Margir telji hús­næði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Margir telji hús­næði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð - Vísir
Gangi samningaviðræður eftir verður brottfarastöð fyrir útlendinga sem vísa á úr landi opnuð að Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Svæðið gengur undi...
Sæ­var las upp yfirlýsingu: „Ég treysti á­kæru­valdinu ekki“ - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Sæ­var las upp yfirlýsingu: „Ég treysti á­kæru­valdinu ekki“ - Vísir
Í yfirlýsingu sinni sagði hann meðal annars að hann hefði enga aðkomu átt að málinu, hann væri ekki sá sem gengur undir nafninu Cloud, sem fjallað hef...
Ný réttar­höld gætu reynst flókin í fram­kvæmd - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Ný réttar­höld gætu reynst flókin í fram­kvæmd - Vísir
Eftir réttarhöldin eru uppi spurningar um það hvernig kviðdómendur eru valdir í Massachusetts í Bandaríkjunum. Dómarinn í málinu hefur tryggt að nöfn ...
Höfnuðu ráð­gjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í for­gangi - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Höfnuðu ráð­gjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í for­gangi - Vísir
Vestfirski fréttamiðilinn Bæjarins besta greinir frá málinu í gær. Í frétt Bæjarins besta kemur fram að á síðasta ári hafi Fjórðungssamband Vestfirðin...
EFTA-dómstóllinn tekur undir með MAST gegn Ísteka
📅 16.09.2026 👁️ 2
EFTA-dómstóllinn tekur undir með MAST gegn Ísteka
Blóðsöfnun Ísteka úr fylfullum blóðmerum fellur undir tilskipun Evrópusambandsins um tilraunir eða vísindalegan tilgang, segir EFTA-dómstóllinn í ráðg...
Fóru átta­tíu prósent fram úr á­ætlun - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Fóru átta­tíu prósent fram úr á­ætlun - Vísir
Gulli Helga, umsjónarmaður þáttanna, segir að sem fyrr sé fjölbreytnin í fyrirrúmi. Það verður meðal annars fylgst með lagfæringum á veitingastað þar ...
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND)
📅 16.09.2026 👁️ 1
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND)
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND) Fréttin16. september 2026Erlent, Evrópusambandið, Úkraín...
Earl Spencer's unreleased book on Diana stolen in the Netherlands
📅 16.09.2026 👁️ 2
Earl Spencer's unreleased book on Diana stolen in the Netherlands
The theft of Earl Spencer's memoir about his late sister comes one week ahead of the book's release.
Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráð­herra illa - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráð­herra illa - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við fréttastofu vegna umfjöllunar Vísis í gær um dagsleyfi Hannesar Valle Þor...
Blóð­taka úr hryssum telst til­raun á dýrum - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Blóð­taka úr hryssum telst til­raun á dýrum - Vísir
Fyrirtækið Ísteka stefndi íslenska ríkinu eftir að Matvælastofnun synjaði því um leyfi til blóðmerahalds í vor. Stofnunin taldi starfsemina ekki uppfy...
Bæjarstjóri um brottfararstöð: „Staðsetning og útfærsla skipta okkur miklu máli“
📅 16.09.2026 👁️ 2
Bæjarstjóri um brottfararstöð: „Staðsetning og útfærsla skipta okkur miklu máli“
„Það ætla ég bara rétt að vona, að ríkið komi ekki enn einu sinni hér og geri eitthvað án samráðs við sveitarfélögin,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjar...
Þögull sem gröfin um Sæ­var - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Þögull sem gröfin um Sæ­var - Vísir
Þetta kom fram þegar skipverjinn gaf skýrslu við aðalmeðferð Dettifossmálsins. Áður hafði hinn skipverjinn gefið skýrslu en fjallað er um hana í frétt...
Dettifossmálið - Upplifði sig svikinn og notaðan og er óskýr um aðkomu Sævars Arnar
📅 16.09.2026 👁️ 3
Dettifossmálið - Upplifði sig svikinn og notaðan og er óskýr um aðkomu Sævars Arnar
Aðalmeðferð er nú hafin í svokölluðu Dettifossmáli eftir nokkuð lífleg átök í Héraðsdómi Reykjavíkur. Meðal ákærðra eru Sævar Örn Hilmarsson, Kastriot...
Íslandshús setur niður fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Reykjanesbæ
📅 16.09.2026 👁️ 3
Íslandshús setur niður fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Reykjanesbæ
Í götunni Nónvörðu í Reykjanesbæ hefur Íslandshús komið fyrir fyrstu forsteyptu hraðahindruninni sem fyrirtækið framleiðir. Um er að ræða afrakstur þr...
Morðingi sem verður tekinn af lífi í dag pantaði risastóra hinstu máltíð – Sjáðu hvað hann pantaði
📅 16.09.2026 👁️ 3
Morðingi sem verður tekinn af lífi í dag pantaði risastóra hinstu máltíð – Sjáðu hvað hann pantaði
Stacey Humphreys verður tekinn af lífi fyrir tvö morð í dag í Georgíufylki í Bandaríkjunum. Humphreys pantaði risavaxna hinstu máltíð.Breska blaðið Th...
Streymisveitan Apple TV loksins á Ís­landi - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Streymisveitan Apple TV loksins á Ís­landi - Vísir
Mbl greindi frá tíðindunum í morgun en engin formleg skýring hefur verið gefin út af Apple um breytinguna.  Þegar vefsíða Apple yfir aðgengi ólíkra la...
Andy Burnham rejects 'tax and spend socialist' comments
📅 16.09.2026 👁️ 3
Andy Burnham rejects 'tax and spend socialist' comments
The prime minister insists he is prepared to take "difficult decisions" at next month's Budget.
Tenerife South passenger numbers fall as other Canary Islands airports grow
📅 16.09.2026 👁️ 3
Tenerife South passenger numbers fall as other Canary Islands airports grow
Passenger traffic at Tenerife South Airport fell by 4.2% during August, making it the notable exception as most of the Canary Islands' other major air...
Ók of hratt í hálku þegar bana­slys varð á Fjarðar­heiði - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 3
Ók of hratt í hálku þegar bana­slys varð á Fjarðar­heiði - Vísir
Banaslysið átti sér stað á Fjarðarheiði um miðjan dag 3. desember. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem var birt í dag kemur fram að erlendur...
Bonnie Greer: British-American author and critic dies at 77
📅 16.09.2026 👁️ 3
Bonnie Greer: British-American author and critic dies at 77
Her husband says the playwright and cultural and political commentator died after a brief illness.
Ursula Von der Leyen kallar eftir auknum völdum ESB á sviði öryggismála, félagslegrar stýringar og hervæðingar – Kanada fær stöðu „tengiaðila“
📅 16.09.2026 👁️ 3
Ursula Von der Leyen kallar eftir auknum völdum ESB á sviði öryggismála, félagslegrar stýringar og hervæðingar – Kanada fær stöðu „tengiaðila“
Ursula Von der Leyen kallar eftir auknum völdum ESB á sviði öryggismála, félagslegrar stýringar og hervæðingar – Kanada fær stöðu „tengiaðila“ Fréttin...
Hætta við að koma fram með Ed Sheeran
📅 16.09.2026 👁️ 3
Hætta við að koma fram með Ed Sheeran
Hætta við að koma fram með Ed Sheeran Finn­eas, Aaron Rowe, Beoga og Lukas Gra­ham hafa dreg­ið sig úr tón­leika­ferð Ed Sheer­ans eft­ir að Macklemor...
Leynibréf Þorgerðar
📅 16.09.2026 👁️ 2
Leynibréf Þorgerðar
Leynibréf Þorgerðar Fréttin16. september 2026Erlent, Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Þorgrerður Katrín Gunnarsdó...
„Suður-Kórea er að fara að greiða fyrir rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta“
📅 16.09.2026 👁️ 2
„Suður-Kórea er að fara að greiða fyrir rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta“
Fyrirtækið Grænafl hefur unnið að lausnum til að rafvæða lítil fiskiskip frá 2024. Orkuskipti strandveiðiflotans hér á landi gætu sparað losun á tugum...
Dæmdar skaðabætur áratug eftir Parísarrán - Upphæðin vekur athygli
📅 16.09.2026 👁️ 3
Dæmdar skaðabætur áratug eftir Parísarrán - Upphæðin vekur athygli
Dómstóll í París dæmdi Kim Kardashian eina evru í skaðabætur fyrir að hafa verið fórnarlamb vopnaðs ráns í frönsku höfuðborginni árið 2016. Upphæðin e...
Vandræðin hrannast upp hjá Ed Sheeran – 200 þúsund fylgjendur horfnir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Vandræðin hrannast upp hjá Ed Sheeran – 200 þúsund fylgjendur horfnir
Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hefur misst um 200 þúsund fylgjendur á Instagram á einum sólarhring eftir að harðar deilur blossuðu upp í kringum ...
Upp­færsla setti strik í hleðslureikninginn - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 3
Upp­færsla setti strik í hleðslureikninginn - Vísir
Fréttastofu barst í gærkvöldi ábendingar frá eigendum rafbíla sem lentu í basli við að hlaða bíla sína vegna uppfærslu á forriti Orku náttúrunnar. Þá ...