Í götunni Nónvörðu í Reykjanesbæ hefur Íslandshús komið fyrir fyrstu forsteyptu hraðahindruninni sem fyrirtækið framleiðir. Um er að ræða afrakstur þriggja ára þróunarvinnu sem hófst í janúar 2023 og hlaut verkefnið viðurkenninguna Nýsköpun ársins á sýningunni Verk og vit 2026 í vor. Reykjanesbær er fyrsta sveitarfélag landsins til að taka þessa nýju lausn í notkun.
Íslandshús setur niður fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Reykjanesbæ