Áfram heldur aðalmeðferð í svokölluðu Dettifossmáli þar sem fjórir svara til saka fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Ákærðu, Sævari Erni Hilmarssyni, Katriot Pepaj og tveimur skipverjum, er gert að sök að hafa staðið að innflutningi á rúmum 14 lítrum af amfetamínbasa, með styrkleika sem nam 47-48 prósentum, ætluðum til söludreifingar hér á landi.Efnin voru falin í fjórum flöskum um borð í gámaflutningaskipinu Dettifossi sem sigldi frá Bremerhaven í Þýskalandi til Íslands aðfaranótt 13. apríl.
Dettifossmálið: Sakar ákæruvaldið um vegferð gegn sér - „Ég er ekki Cloud“