Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri heilsugæslu- og forvarnasviðs hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, hefur verið ráðin í starf forstjóra SÁÁ og hefur bráðlega störf.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÁÁ.
„Við erum virkilega ánægð með að fá Baldvinu Ýr til starfa hjá SÁÁ á þessum tímamótum. Hún býr yfir reynslu af stjórnun, sterkum faglegum bakgrunni og þekkingu á flóknum rekstri í heilbrigðisþjónustu. Ráðning hennar er mikilvægt skref í því að skapa stöðugleika, byggja upp traust og styrkja samstarfið innan samtakanna,“ er haft eftir formanni SÁÁ.
Talsverður styr hefur staðið um SÁÁ að undanförnu og lykilstjórnendur, meðal annars fyrrverandi forstjóri, horfið frá.
Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, hafa lýst óeðlilegum afskiptum stjórnar af faglegu starfi innan SÁÁ. Formaður samtakanna hefur hins vegar hafnað þessu.
Stór hluti starfsfólks lýsti yfir vantrausti á framkvæmdastjórn SÁÁ fyrir skemmstu. Aðalstjórn SÁÁ lýsti í framhaldinu yfir stuðningi við framkvæmdastjórn.