Hið minnsta átta börn eru meðal þeirra sem létust þegar sködduð bygging í Gazaborg hrundi í morgun. Staðfest hefur verið að tuttugu og einn séu látnir en fjölda fólks er enn þá saknað.
Húsið var sex hæðir og tók að halla verulega eftir árás Ísraelshers fyrir rúmu ári. Þrátt fyrir að ástand byggingarinnar mætti teljast vafasamt bjuggu í henni að minnsta kosti tíu fjölskyldur sem áttu ekki í önnur hús að venda. Talið er mögulegt að hátt í 100 manns gætu verið fastir.
Leyfa ekki afhendingu vinnuvéla
Björgunarmenn keppast við tímann og beita berum höndum við að velta öllum steinum þar sem skortur er á björgunarbúnaði. BBC hefur eftir heimildarmönnum hjá almannavörnum á Gaza að raddir berist enn undan rústunum og því sé von til þess að fleiri finnist á lífi.
Ísraelsk stjórnvöld hafa verið hvött til að leyfa afhendingu vinnuvéla á Gaza sem nota má við björgunaraðgerðir. Það hyggjast stjórnvöld hins vegar ekki leyfa þar sem slíkar vélar gætu endað í höndum vopnaðra sveita innan Gaza.