Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu og aðgerðir sendla heimsendingarfyrirtækisins Wolt. Sambandið hvetur þá til að leita til ASÍ og aðildarfélaga þess til að tryggja þeim stöðu og kjör samkvæmt lögum og kjarasamningum.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ASÍ.
Um 60 sendlar sem starfa fyrir Wolt á Íslandi lögðu niður störf í dag og kröfðust útskýringa á að þeir hefðu lækkað í launum undanfarna mánuði.
Sendlarnir eru í svokallaðri gerviverktöku. Þeir eru ekki starfsmenn Wolt og eru ekki í stéttarfélagi. Sendlarnir búa því ekki við veikindarétt og uppsagnarfrest, til dæmis.
Wolt greiðir sendlum aðeins fyrir hverja sendingu sem þeir fara með. Sjálfir greiða þeir eldsneyti, kílómetragjald, skatta og allt annað sem fellur til.
Miðstjórn ASÍ skorar á fyrirtæki sem starfrækja stafræna vinnuvettvanga á Íslandi að skrá starfsmenn sína sem launafólk og gerast aðilar að kjarasamningum.
Ábyrgð og áhætta eigi að vera hjá fyrirtækjum
ASÍ segir að stafræn stjórnun og ný rekstrarform megi aldrei verða til þess að færa ábyrgð og áhættu atvinnurekstrar yfir á einstaklinga.
„Íslensk verkalýðshreyfing mun aldrei samþykkja félagsleg undirboð sem grafa undan kjarasamningsbundnum kjörum og réttindum launafólks og leikreglum skipulagðs vinnumarkaðar,“ segir í tilkynningu ASÍ.
Þá segir að tryggja verði fólki mannsæmandi afkomu, örugg starfsskilyrði og félagslega vernd í því sem sambandið kallar hark-hagkerfið.
„Uppgangur hark-hagkerfisins er alþjóðlegt vandamál og víða er sótt að kjörum og réttindum launafólks.“