Rauðgræna blokkin er sigurvegari þingkosningana í Svíþjóð sem fram fóru um helgina. Þetta fullyrti sænska ríkisútvarpið síðdegis þegar 99% atkvæða höfðu verið talin. Búist var við að ekki yrði hægt að fullyrða um sigurvegara í kosningunum fyrr en á morgun.
Rauðgræna blokkin og flokkar innan hennar hafa verið í stjórnarandstöðu undanfarið kjörtímabil. Það er því ljóst að ríkisstjórn Ulfs Kristersson forsætisráðherra hefur misst umboð sitt og líklegast er að Magdalena Andersson, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, taki við embættinu að loknum stjórnarmyndunarviðræðum.
Þær viðræður gætu tekið langan tíma, þar sem afar mjótt var á munum. Eins og sakir standa er því spáð að rauðgræna blokkinn, sem samanstendur af vinstri- og miðjuflokkum, fái 175 þingsæti en blágræna blokkin, sem er frá miðju og til hægri, 174. Með svo nauman meirihluta má lítið út af bregða til þess að stjórnarmyndun renni út í sandinn. Svo getur enn farið að skiptingin verði 176-173.
Nýtt þing kemur saman 28. september og kýs nýjan þingforseta, sem hefur það hlutverk að fela einhverjum flokksleiðtoga stjórnarmyndunarumboð. Kristersson eru tveir kostir færir. Annars vegar að biðjast lausnar og þá felur Andreas Norlén, fráfarandi þingforseti, einhverjum flokksleiðtoga að mynda ríkisstjórn. Líklegast yrði það Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmannaflokksins. Hins vegar getur Kristersson beðið og ákveðið að halda umboði sínu þar til nýtt þing kemur saman.
„Boltinn er hjá forsætisráðherranum,“ hefur sænska ríkisútvarpið eftir Norlén.
Jafnaðarmannaflokkur Magdalenu Andersson fékk um 28% atkvæða í kosningunum á sunnudag. Þótt það hafi verið mest fylgi allra flokka er það samt versta niðurstaða flokksins í meira en 100 ár.
Svíþjóðardemókratar, sem eru lengst til hægri í sænskum stjórnmálum og vörðu fráfarandi ríkisstjórn vantrausti, misstu einnig fylgi. Það er talið hafa sett mikið strik í reikning blágulu blokkarinnar.