Íslendingar og Slóvenar hafa óskað eftir fresti frá EBU, samtökum evrópska sjónvarpsstöðva, til að taka ákvörðun um þátttöku í söngvakeppninni Eurovision á næsta ári. Báðar þjóðir voru á meðal þeirra sem sniðgengu keppnina síðastliðið vor.Eurovision miðillinn Eurovision Fun greinir frá þessu.EBU hefur veitt Íslendingum (það er RÚV) og Slóvenum frekari frest til þess að ákveða hvort tekið verður þátt í Eurovision söngvakeppninni að ári. Báðar þjóðir sniðgengu keppnina árið 2026 vegna þátttöku Ísraela. Það gerðu einnig Hollendingar, Spánverjar og Írar.
Íslendingar fá frest til þess að ákveða með Eurovision þátttöku árið 2027