Eftir að ljóst var að áform um að byggja nýjan Tækniskóla í Hafnarfirði færu út um þúfur, þar sem bærinn gat ekki staðið við skuldbindingar sínar um að útvega lóð, hafa bæði Mosfellsbær og Reykjavík lýst yfir áhuga á skólanum - og nú bætist Reykjanesbær í hóp áhugasamra.
Stórt iðnaðarmannasamfélag
„Tækniskólinn myndi eiga mjög vel heima hérna með allri þeirri gagnaversuppbyggingu, landeldi, uppbyggingunni í kringum flugvöllinn og niður í Helguvík,“ segir Ingvar Eyfjörð framkvæmdastjóri Aðaltorgs. „Hér er mjög stórt iðnaðarmannasamfélag og mjög mörg verkefni sem bíða í framtíðinni.“
Svæðið sem um ræðir heitir Aðaltorg, er skammt frá Keflavíkurflugvelli og liggur við Reykjanesbraut. Þar eru fyrir hótel og ýmis þjónusta og Ingvar segir að auk skólabyggingar rúmi svæðið vel fjölda námsmannaíbúða - en heimild er til að reisa þar á fjórða hundrað íbúðir.
Tækifæri út fyrir boxið
Hann segir svæðið tilbúið og ekkert að vanbúnaði að hefja framkvæmdir á morgun - sýnist mönnum svo.
„Þetta yrði veruleg lyftistöng. Við erum í sóknarhug varðandi menntun á svæðinu. Við þurfum að auka og efla iðnmenntun á svæðinu, við þurfum að auka menntunarstig á svæðinu.“
Þetta er feikilega stórt og mikið tækifæri ef menn vilja aðeins skoða og hugsa út fyrir boxið.
Fyrir skömmu varð ljóst að ekkert yrði af byggingu skólans við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði, en þau áform voru fyrst kynnt fyrir fimm árum og deiliskipulag vegna hans samþykkt í sumar.
Verklok voru fyrirhuguð haustið 2029. Skólinn starfar í átta húsum á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu og er í brýnni þörf fyrir nýtt húsnæði sem er liður í eflingu iðn- og tæknináms.