Eitt stærsta gagnaver landsins gæti risið á Bakka, norðan Húsavíkur. Áform bresks fyrirtækis um 120 milljarða byggingu voru kynnt íbúum í Norðurþingi í gær.
Íbúar sem sátu kynningarfundinn í gær virtust taka vel í hugmyndina - því eftir að PCC slökkti á vinnslunni á Bakka, vel yfir hundrað misstu vinnuna og svipaður fjöldi flutti úr bænum - vilja þeir ólmir sjá uppbyggingu og störfin sem henni fylgja.
Og uppbyggingin sem nú er á teikniborðinu, við hliðina á húsi Landsnets á Bakka, er ekkert smáræði.
„Heildarsvæðið 8 hektarar en byggingin sjálf, gagnaverið kannski um 2 hektarar og þetta eru um hundrað megavött, sem sagt af gagnanýtingu“, segir Þóra Helgadóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Eyrie DC.
Gagnaver eru orkufrek en forsvarsfólk Eyrie DC segist langt komið í viðræðum við Landsvirkjun og Landsnet á næstu lóð. Formlegur samningur um afhendingu orku er þó ekki í höfn.
Einnig hafi verið góð samvinna við FARICE, sem rekur sæstrengina sem tengja Ísland við umheiminn.
Sveitarstjóri segir vilja þeirra megin til að hraða undirbúningsvinnu. Vonast sé til að uppbygging geti hafist á næstu 6 mánuðum, fjöldi starfa skapist á byggingartímanum en verðmætust séu líklega þau fimmtíu hátæknistörf sem verði við rekstur gagnaversins.
Í gagnaverinu eiga að vera, ólíkt því sem þekkist annars staðar hérlendis, tæki fyrir aðeins einn stóran viðskiptavin, bandarískt fyrirtæki sem er sagt leiðandi í þróun gervigreindar.
Þetta yrði þriðja gagnaverið á Norðurlandi sem byggist upp á aðeins nokkrum árum. Þóra segir Bakka hafa marga kosti, en milt loftslag Íslands sé kallað Gullbrár-umhverfi fyrir gagnaver - ekki of heitt, ekki of kalt, akkúrat mátulegt.
„Það eru náttúrlega bara þessir frábæru innviðir sem eru til staðar nú þegar. Og þetta iðnaðarsvæði sem er að byggjast upp hér á Bakka sem gerir þetta aðlaðandi staðsetningu“, segir Þóra.