Fjallgöngugarparnir Jónas G. Sigurðsson og Andri Már Ómarsson klifu klettinn Þuríði sunnan við Bolungarvík. Þeir gætu hafa verið fyrstir til að klettinn en nú er mikið leitað að gömlum heimildum sem gætu sannað hið gagnstæða.
Þuríður er snarbrattur klettur í Óshyrnu sem kenndur er við Þuríði sundafylli. Hún nam land í Bolungarvík á 10. öld og bjó á Vatnsnesi í Syðridal.
Hugmyndin að leiðangrinum kom frá Garpi Ingasyni Elísabetarsyni sem stýrir þáttunum Okkar eigið Ísland á Vísi og Sýn. Hægt er að sjá myndir af ferðalagi þeirra Jónasar og Andra í meðfylgjandi myndskeiði sem var tekið af Svani Gabriele Monaco.
Leita að upplýsingum um fyrri ferðir
„Maður er alltaf að leita sér að spennandi áfangastöðum,“ segir Garpur. Hann hafi heyrt af því að tindur Þuríðar væri enn óklifinn og þá kviknaði hugmyndin. Eftir að myndband af ævintýrinu var birt á Facebook hafa þó komið fram upplýsingar um að menn hafi komist alla leið á topp klettsins.
„Það er mjög líklegt að við höfum farið nýja leið en mögulega vorum við ekki alveg fyrstir upp á toppinn,“ segir Jónas G. Sigurðsson sem kleif Þuríði á sunnudag. „Það var mögulega einn sem fór upp ‘82 sem er að grafast eftir myndum. Þannig að það eru hinir og þessir að vinna að því að finna upplýsingar fyrir okkur.“
Jónas segir að ekki hafi fundist neinar myndir af fólki á toppnum, né leiðarlýsing á ferðalaginu upp. Það er verulega snúið eins og göngumenn komust að um helgina en þeir þurftu tvær tilraunir til að komast upp á topp.
„Við vorum bara inni í skýi“
Á laugardeginum fóru þeir upp leið sem þeir héldu að væri sú þægilegasta. Svo byrjaði að rigna. „Það var allt orðið blautt og þykk þoka utan um okkur, við vorum bara inni í skýi,“ segir Jónas. Þeir hafi því sigið niður og skoðað klettinn betur.
„Við fundum aðra leið sem okkur leist betur á. Svo sáum við að það var veðurgluggi á sunnudeginum þannig að þá ákváðum við að prófa aftur.“