Hútar hafa lagt undir sig stóran hluta vesturstrandar Jemen og mikilvægar eyjur á Rauðahafi. Þá hafa þeir gert ítrekaðar árásir á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu.
Þessar árásir hafa komið verulega niður á olíuframleiðslu og sölu Sáda. Hútar hafa gert árásir á olíuleiðslur í Sádi-Arabíu og segjast ætla að gera árásir á öll olíuflutningaskip Sáda.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa tilkynnt kaupendum hráolíu í Evrópu að ekki sé von á því að hún berist þangað á næstunni.
Bandarískir erindrekar funduðu um síðustu helgi með fulltrúum Húta í Óman. Þar sögðust þeir ekki ætla að hætta árásum gegn Sádum en hétu því að ráðast ekki á skip annarra eða skotmörk tengd Bandaríkjunum og Ísrael, samkvæmt frétt Reuters.
Í dag tilkynntu Hútar svo að þeir hefðu skotið tugum dróna og skotflauga að olíuvinnsluinnviðum ríkisfyrirtækisins Aramco í Yanbu í Sádi-Arabíu. Einnig hefði verið ráðist á herstöð en Hútar segja árásirnar vel heppnaðar. Það hefur ekki verið staðfest.
Enn fremur segjast Hútar ætla að halda árásunum áfram og gefa til kynna að það verði gert þar til herkvínni gegn Íran verði aflétt. Klerkastjórnin í Íran hefur lengi staðið við bak Húta.
NEW: Yemen's Houthis claim two new strikes on Saudi Arabia:
— Clash Report (@clashreport) September 16, 2026
Aramco facilities in Yanbu hit with "dozens of ballistic missiles and drones" causing "large fires and widespread destruction," and Khamis Mushait air base hit with ballistic missiles.
They say it was retaliation for… pic.twitter.com/3kiVG5SaAa
Þá hafa Hútar einnig birt myndefni sem sagt er sýna það þegar F-15 þota Sáda var skotin niður í dag. Áður hafði mynd af meðlimum Húta standa á braki herþotu verið í dreifingu.
Onboard footage of a Houthi SAM system shooting down a Saudi F-15 overnight over Yemen’s Marib province. pic.twitter.com/6mh23B2Ovu
— OSINTtechnical (@Osinttechnical) September 16, 2026