Svarthöfði er áhugamaður um pólitík – síður um pólitíkusa, með örfáum undantekningum þó. Þær eiga ekki við um Karl Gauta Hjaltason, þingmann Miðflokks og reyndar áður Flokks fólksins, með hlé á milli. Svarthöfða hefur sýnst að hann hafi fremur fátt fram að færa og giskar á að þingmaðurinn líti á þingmennskuna sem þægilega innivinnu í ungmennafélagsanda þar sem áherslan er á að vera með.Af þessum sökum vakti það undrun Svarthöfða þegar þingmaðurinn sté í ræðustól Alþingis í gær og krafðist afsagnar utanríkisráðherra, eiginlega af því bara.
Svarthöfði skrifar: Síðmiðaldra gervisiðapostuli með skipt í miðju