SWEAT and BLOOD, ný sýning Diönu Burkot opnar í SIND gallery, Hringbraut 122, föstudaginn 18. september kl. 18. Burkot er meðlimur í Pussy Riot, hún er listamaður, tónlistarmaður og aktívisti, fædd í Rússlandi og búsett í Reykjavík. Hún starfar á sviði samtímalistar, tilraunatónlistar, myndbandslistar, innsetninga og gjörninga.Í verkum sínum fjallar Burkot um pólitískt vald og valdaleysi, sjálfsvitund, femínisma, líkamlegt strit, fólksflutninga, sameiginleg áföll og andspyrnu. Hún vinnur með hráan líkamleika og margmiðlun til að rannsaka þessi viðfangsefni.
Meðlimur Pussy Riot opnar sýningu á föstudag