Hashim Thaçi, fyrrverandi forseti Kosóvó, var í morgun dæmdur sekur um stríðsglæpi og til 25 ára fangelsisvistar.
Réttað var yfir Thaci og þremur öðrum liðsmönnum Frelsishers Kósóvó fyrir sérstökum stríðsglæpadómstól í Haag vegna gömlu Júgóslavíu. Thaci var dæmdur sekur um ólögmætar handtökur, pyntingar, morð og illa meðferð í Kósóvóstríðinu undir lok síðustu aldar.
Thaci er álitinn hetja af mörgum í Kósóvó. en þar hefur niðurstöðu réttarhaldanna verið beðið í þrjú ár.