Hópur bandarískra fjárfesta með tengsl við Donald Trump Bandaríkjaforseta er sagður hafa keypt hús fyrir grænlenska kaupsýslumanninn og fyrrverandi stjórnmálamanninn Jørgen Wæver Johansen.
Þetta kemur fram í danska miðlinum BT þar sem segir jafnframt að Johansen sé eiginmaður Vivian Motzfeldt, fyrrverandi utanríkisráðherra Grænlands. Hennar stjórnmálaferils verður án efa einna helst minnst fyrir fræga ferð til Washington D.C., þar sem hún og Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, funduðu með J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, og Marco Rubio utanríkisráðherra vegna áhuga Trumps á Grænlandi.
Kaupverðið var 5,4 danskra króna, andvirði 100 milljóna íslenskra króna, og er húsið staðsett miðsvæðis í höfuðstaðnum Nuuk.
Fyrr á þessu ári kom í ljós að félagið Greenland Development Partners LLC hafi fjárfest í fyrirtækjum Johansens. BT segir að Ronald nokkur Lauder hafi verið þar á bakvið. Lauder er erfingi snyrtivöruveldisins Estée Lauder og er sagður vinur Trumps forseta.
Johansen segir í skriflegu svari til BT að hann vinni að því að laða að fjárfestingar til þróunar á Grænlandi og að Lauder hafi ekki komið nálægt fjármögnun fasteignarinnar.
BT ræðir við sérfræðing í stefnumótun á norðurslóðum, Marc Jacobsen, sem segir: „Ég efast alls ekki um að þetta sé stefnumótandi fjárfesting, að komast nær fólki með ákvörðunarvald á Grænlandi, þar á meðal Vivian Motzfeldt í gegnum eiginmann hennar.“