80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Í skilmálum flestra samfélagsmiðla er kveðið á um að þeir séu bannaðir börnum yngri en 13 ára. Hlutfallslega eru fleiri strákar sem nota samfélagsmiðla. Það gera 88,5% þeirra samanborið við 76,7% stelpna.
Þetta kemur fram í nýjum lýðheilsuvísum sem voru kynntir í ellefta sinn á Egilsstöðum í dag. Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem ætlað er að gefa vísbendingar um heilsu og líðan landsmanna á hverjum tíma. Embætti landlæknis birtir lýðheilsuvísa árlega en þeim er ætlað að auðvelda stjórnvöldum og öðrum að greina stöðu lýðheilsu, finna styrkleika og áskoranir og skilja þarfir íbúa til að geta ýtt undir bætta heilsu og líðan fólks.
Í sumar voru áform barna- og menntamálaráðuneytisins um lagasetningu sem bannar samfélagsmiðla fyrir ungmenni undir 15 ára kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar verður frumvarpið lagt fram í október. Markmið þess er að „styrkja vernd barna í stafrænu umhverfi og bregðast við áhyggjum af áhrifum samfélagsmiðlanotkunar á velferð barna“.
43% framhaldsskólanema segja andlega heilsu sína slæma
Í tilkynningu landlæknis segir að greiningum á kvíða meðal barna á aldrinum 6-17 ára hafi fjölgað hlutfallslega frá árinu 2020. Breytingin er mismikil á milli heilbrigðisumdæma. Ávísunum á lyf við kvíða og þunglyndi til barna á þessum aldri hefur aftur á móti staðið nokkuð í stað eða dregist heldur saman.
43% framhaldsskólanema meta andlega heilsu sína slæma og 29% þeirra segjast vera oft eða alltaf einmana.
Færri eiga erfitt með að láta enda ná saman
Árið 2025 mátu 30% fullorðinna andlega heilsu sína slæma eða lélega. Hlutfallið lækkaði milli ára en það var 33% ári fyrr. „Sums staðar hækkaði hlutfallið og annars staðar lækkaði það, eins og t.d. á Suðurnesjum þar sem lækkunin er marktæk,“ segir í tilkynningu frá embætti landlæknis.
Sömuleiðis eiga færri í fjárhagserfiðleikum en áður. Hlutfall þeirra sem sögðust eiga erfitt með að láta enda ná saman lækkaði milli ára og fór úr 19% árið 2024 í 15,5% í fyrra. Þetta hlutfall lækkaði á milli ára í öllum heilbrigðisumdæmum.