Likud-flokkur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, fer þess á leit við yfirkjörstjórn landsins að hafna tillögum um að leyfa ísraelskum ríkisborgurum erlendis að kjósa í þingkosningum sem fyrirhugaðar eru seint í næsta mánuði.
Lög kveða á um í dag að þeir 600 þúsund ísraelsku ríkisborgarar sem búa erlendis megi ekki kjósa til þings, nema erindrekar ríkisins. Stjórnarandstæðingar hafa hvatt Ísraelsmenn erlendis til að ferðast heim og greiða atkvæði utankjörfundar fyrir kosningarnar 27. október. Þeir telja stuðning við flokk Netanjahús minni meðal þessa hóps.
Brugðið hefur verið á það ráð að bjóða flugfargjöld með afslætti eða aðstoð við akstur frá flugvöllum í Ísrael og á kjörstað. Lögmaður Likud sendi formanni yfirkjörstjórnar bréf í dag þar sem þess er krafist að tekið verði fyrir þetta. Bréf þetta vísar sérstaklega til bandarísku AID-samtakanna, sem að eigin sögn vinna að því að styrkja og varðveita lýðræði í Ísraelsríki. Samtökin eru á bakvið það sem kallað hefur verið Fljúga & kjósa tilboðið. Í bréfinu segir að þessar aðferðir líkist kosningamútum og mögulega brjóti þau gegn lögum um fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Kannanir benda til þess að kosningarnar í október verði spennandi. Þær eru þær fyrstu síðan Hamas réðst á landið, 7. október 2023, og hernaður Ísraels á Gaza hófst. Miðjumaðurinn Gadi Eisenkot er sagður munu veita Netanjahú, þaulsetnasta forsætisráðherra í ísraelskri sögu, verðuga samkeppni.