Icelandair býður farþegum sem eiga bókaðar flugferðir 23. og 24. september að færa þær vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Viðræður Flugvirkjafélags Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Icelandair um nýjan kjarasamning hafa staðið yfir síðan í nóvember 2025. Töluvert ber á milli aðilanna. Flugvirkjar hafa boðað til ótímabundins verkfalls sem á að hefjast klukkan 00:01 miðvikudaginn 23. september.
„Mikil röskun“
Allar ferðir Icelandair eru enn á áætlun en að óbreyttu falla allar ferðir félagsins niður, bæði í millilanda- og innanlandsflugi, um leið og verkfallið hefst.
„Þar sem enn er um háannatíma að ræða og flest flug félagsins vel bókuð, mun verkfallið, ef af verður, valda mikilli röskun fyrir farþega. Að jafnaði eru 110 flug í leiðakerfi Icelandair og um 15 þúsund farþegar á dag á þessum tíma. Það er ljóst að verkfallið mun ekki einungis valda Icelandair tjóni, heldur einnig hafa víðtæk áhrif á íslenskt atvinnulíf, hagkerfið og samfélagið í heild,“ segir í tilkynningu.
Icelandair segir að það hafi samband við farþega ef flugáætlun breytist. Viðskiptavinir eru hvattir til að huga að því að tengiliðaupplýsingar í bókun sinni séu skráðar rétt.