Umrædd lögreglustöð sinnir Kópavogi og Breiðholti í Reykjavík. Einnig var tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi sem hafði komið á ölhús og verið ógnandi með hníf. Viðkomandi var handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til hann verður skýrsluhæfur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en málið kom á borð lögreglustöðvar sem sinnir Seltjarnarnesi og Miðborg, Vesturbæ, Hlíðum, Laugardal og Háleiti í Reykjavík.
Einnig var óskað eftir aðstoð vegna þjófnaðar úr annarri matvöruverslun og var vettvangsskýrsla rituð á vettvangi.
Ók á einstakling á rafhlaupahjóli
Laganna verðir höfðu sömuleiðis afskipti af einstaklingi sem grunaður er um sölu og dreifingu fíkniefna og læknalyfja, vopnalagabrot, peningaþvætti og fleira, að sögn lögreglu.
Í ótengdu máli hafi verið óskað eftir aðstoð vegna umferðarslyss þar sem ökumaður bifreiðar ók á einstakling á rafhlaupahjóli. Einn var fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl með minni háttar áverka.
Þá aðhafðist lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tvívegis í dag vegna vinnuslysa. Í báðum tilvikum voru tjónþolar fluttir á sjúkrahús með sjúkrabílum til frekari skoðunar með minniháttar áverka, að því er fram kemur í tilkynningu.
Öll málin og fleiri voru skráð frá klukkan 5 í morgun til 17 í dag. Þrír eru sagðir vistaðir í fangageymslu lögreglu.